Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfingur úr GR, hóf leik í morgun á LET Access mótaröðinni en að þessu sinin er keppt í Sviss. Ólafía hóf leik í morgun á 10. teig en keppnin stendur yfir í þrjá daga þar sem leiknar verða 54 holur og verður keppendum fækkað eftir 36 holur á föstudaginn.
Ólafía lék á sínu fyrsta móti á Terre Blanche mótinu í Frakklandi í lok mars og þar náði hún fínum árangri og lék á einu höggi undir pari samtals og endaði á meðal 15 efstu.
Alls eru 126 keppendur á þessu móti frá 28 þjóðum. Mótið fer fram á Golf Club Gams Werdenberg í Gams í Sviss. Heildarverðlaunaféð er 4,3 milljónir kr.
Margir kylfingar sem eru með keppnisrétt á LET Evrópumótaröðinni eru á meðal keppenda á þessu móti. Mótið er því sterkt og gefur mörg stig á heimslistann.
Þetta er annað mótið á þessu ári hjá Ólafíu en hún undirbýr sig af krafti fyrir fyrsta mótið á sjálfri LET Evrópumótaröðinni í byrjun maí. Ólafía er með keppnisrétt á sterkustu atvinnumótaröð Evrópu í kvennaflokki en hún fær samt sem áður ekki mörg tækifæri á þeirri mótaröð á sínu fyrsta keppnistímabili. Hún nýtir því hvert tækifæri til þess að keppa á næst sterkustu atvinnumótaröð Evrópu, LET Access mótaröðinni, en þar eru tveir íslenskir kylfingar með keppnisrétt. Ólafía Þórunn og Valdís Þóra Jónsdóttir úr GL.