Ólafía Þórunn Kristinsdóttir lét svo sannarlega að sér kveða á LET Evrópumótaröðinni sem fram fór í síðustu viku í Abu Dhabi. GR-ingurinn var í efsta sæti fyrstu tvo keppnisdagana og vakti árangur hennar mikla athygli. Hér fyrir neðan er samantekt frá mótinu.