Fimm íslenskir kylfingar hófu leik í gær á Nordic Golf atvinnumótaröðinni. Mótið fer fram á PGA Catalunya Resort rétt við Barcelona á Spáni. Mótið er hluti af Ecco mótaröðinni sem er samstarfsverkefni sérsambanda á Norðurlöndunum og er mótaröðin í þriðja styrkleikaflokki í Evrópu.
Haraldur Franklín Magnús úr GR lék á -2 á fyrsta hringnum eða 70 höggum og er hann í 13. sæti af alls 130 keppendum. Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG lék á 71 höggi eða -1 og er Íslandsmeistarinn í 23. sæti. Guðmundur Ágúst Kristjánsson úr GR lék einnig á 71 höggi. Andri Þór Björnsson var á +4 eða 76 höggum og Axel Bóasson úr GK á 82 höggum +10.
Mótið heitir Mediter Real Estate Masters. Andri Þór og Axel eru báðir með keppnisrétt á þessari mótaröð eftir úrtökumótið s.l. haust.