Fræðslufundur fyrir stjórnendur og starfsmenn golfklúbba á vegum Golfsambands Íslands fer fram þann 1. apríl n.k. í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Fyrirlestrarnir á fræðslufundinum snúast að mestu um rafrænt umhverfi golfhreyfingarinnar. Arnar Geirsson kerfis – og skrifstofustjóri GSÍ mun kynna breytingar á tölvukerfinu golf.is. Margeir Steinar Ingólfsson, ráðgjafi hjá Hugsmiðjunni, mun síðan halda fyrirlestur um samfélagsmiðla en Margeir hefur mikla reynslu á því sviði.
Tölvukerfið golf.is og markaðssetning á samfélagsmiðlum
Staður: Íþróttamiðstöðinni í Laugardal, salur E, 3 hæð.
Stund: Laugardaginn 1 apríl, 10:00 – 12:30
Dagskrá:
Kl. 10.00 – 10.40:
- Helstu breytingar á tölvukerfinu golf.is.
Farið verður yfir helstu endurbætur og nýjungar í mótastjóranum.
Arnar Geirsson, kerfisstjóri GSÍ
Kl. 10.40 – 10.50:
Opnar umræður og athugasemdir.
Kl. 11.00 – 12.00:
- Samfélagsmiðlun sem virkar
Náðu forskoti með mikilli útbreiðslu og lægri kostnaði en með hefðbundinni markaðssetningu. Við stöndum á öldufaldi byltingar í markaðssetningu – byltingar samfélagsmiðlanna. Golfklúbbar sem læra að virkja þennan nýja vettvang geta náð stórkostlegu forskoti; gífurlegri útbreiðslu með margfalt lægri kostnaði en sem fylgir markaðssetningu með hefðbundnum leiðum.
Margeir Steinar Ingólfsson, ráðgjafi hjá Hugsmiðjunni
Kl. 12.00 – 12.10:
Opnar umræður og athugasemdir.
Boðið verður upp á kaffi og meðlæti á meðan á fundinum stendur og í lokin verður boðið upp á hádegisverð.
Vinsamlegast skráið ykkur með því að smella hér:
Með bestu kveðju, Golfsamband Íslands