Valdís Þóra Jónsdóttir endaði í fjórða sæti á -4 samtals á LET Access mótaröðinni sem fram fór í Tékklandi. Valdís fékk skolla á lokaholunni í gær á öðrum keppnisdeginum sem varð til þess að hún fékk ekki tækifæri í óvæntu umspili um efsta sætið.
Eldur kom upp í klúbbhúsinu í nótt og forráðamenn mótsins ákváðu að aflýsa lokaumferðinni. Þrír efstu kylfingarnir léku í bráðabana um sigurinn. Valdís missti því af bráðabananum á -4 samtals en hún var einu höggi frá efsta sætinu.
Valdís lék á 68 höggum á fyrsta hringnum og á 70 höggum í gær.
Mótaröðin er sú næst sterkasta í Evrópu á eftir LET Evrópumótaröðinni þar sem Valdís Þóra er með keppnisrétt.