Golfsamband Íslands hefur valið kylfinga ársins 2017. Þeir eru Ólafía Þórunn Kristinsdóttir (GR) og Axel Bóasson (GK).
Ólafía Þórunn náði frábærum árangri á sínu fyrsta tímabili á LPGA mótaröðinni sem er sterkasta atvinnumótaröð heims. GR-ingurinn endaði í 74. sæti á stigalistanum með árangri sínum er hún í forgangi á öll mótin á LPGA mótaröðinni á næsta tímabili.
Ólafía Þórunn lék á alls þremur risamótum af alls fimm. Hún er fyrsti íslenski kylfingurinn sem kemst inn á risamót í atvinnugolfi. Þar að auki var hún valin í úrvalslið LET-Evrópumótaraðarinnar á Drottningarmótinu í Japan. Hún er jafnframt fyrsti íslenski kylfingurinn sem er valin í slíkt úrvalslið atvinnukylfinga.
Alls lék Ólafía Þórunn á 26 mótum á LPGA. Besti árangur hennar á tímabilinu var 4. sæti Indy Women in Tech Championship í júlí. Ólafía náði 10 besta árangri tímabilsins af nýliðum á LPGA mótaröðinni. Árangur Ólafíu á heimslista atvinnukylfinga er sá besti í sögunni hjá íslenskum kylfingi. Hún náði að komast í sæti nr. 179 og fór upp um 420 sæti á árinu og styrkti þar með stöðu sína verulega fyrir þátttöku á Ólympíuleikunum í Tókýó í Japan árið 2020.
Axel Bóasson átti sitt besta tímabil frá upphafi á árinu 2017. Keilismaðurinn fagnaði sínum öðrum Íslandsmeistaratitli með eftirminnilegum hætti á heimavelli á Hvaleyrarvelli. Axel sigraði á tveimur mótum á Nordic Tour atvinnumótaröðinni og er hann fyrsti íslenski kylfingurinn sem sigrar á þeirri mótaröð.
Þar að auki tryggði Axel sér stigameistaratitilinn á Nordic Tour atvinnumótaröðinni og það var einnig í fyrsta sinn sem íslenskur kylfingur nær þeim árangri. Nordic Tour atvinnumótaröðin er í þriðja styrkleikaflokki atvinnumótaraða í Evrópu. Axel tryggði sér með árangri sínum á mótaröðinni keppnisrétt á næst sterkustu atvinnumótaröð Evrópu á næsta tímabili, Áskorendamótaröðinni (Challenge Tour).
Axel hefur farið hratt upp heimslistann á þessu ári og er hann efstur íslenskra karla á atvinnumannalistanum. Axel fór upp um rúmlega 1400 sæti á heimslistanum og er í sæti nr. 449.
Þetta er í 20. skipti þar sem tveir einstaklingar eru valdir sem kylfingar ársins hjá GSÍ. Þetta er í sjötta sinn sem Ólafía Þórunn fær þessa viðurkenningu en í fyrsta sinn sem Axel er efstur í þessu kjöri.
Árið 1973 var fyrsta kjörið hjá GSÍ á kylfingi ársins. Birgir Leifur Hafþórsson hefur oftast verið kjörinn kylfingur ársins í karlaflokki eða alls 11 sinnum. Ólafía Þórunn er sú sem oftast hefur fengið þessa viðurkenningu hjá konunum eða alls sex sinnum.
1973 | Björgvin Þorsteinsson | GA | ||
1974 | Sigurður Thorarensen | GK | ||
1975 | Ragnar Ólafsson | GR | ||
1976 | Þorbjörn Kjærbo | GS | ||
1977 | Björgvin Þorsteinsson | GA | ||
1978 | Gylfi Kristinsson | GS | ||
1980 | Hannes Eyvindsson | GR | ||
1981 | Ragnar Ólafsson | GR | ||
1982 | Sigurður Pétursson | GR | ||
1983 | Gylfi Kristinsson | GS | ||
1984 | Sigurður Pétursson | GR | ||
1985 | Sigurður Pétursson | GR | ||
1986 | Úlfar Jónsson | GK | ||
1987 | Úlfar Jónsson | GK | ||
1988 | Úlfar Jónsson | GK | ||
1989 | Úlfar Jónsson | GK | ||
1990 | Úlfar Jónsson | GK | ||
1991 | Karen Sævarsdóttir | GS | ||
1992 | Úlfar Jónsson | GK | ||
1993 | Þorsteinn Hallgrímsson | GV | ||
1994 | Sigurpáll Geir Sveinsson | GA | ||
1995 | Björgvin Sigurbergsson | GK | ||
1996 | Birgir Leifur Hafþórsson | GL | ||
1997 | Birgir Leifur Hafþórsson | GL | ||
1998 | Björgvin Sigurbergsson | GK | Ragnhildur Sigurðardóttir | GR |
1999 | Örn Ævar Hjartarson | GS | Ólöf María Jónsdóttir | GK |
2000 | Björgvin Sigurbergsson | GK | Ragnhildur Sigurðardóttir | GR |
2001 | Örn Ævar Hjartarson | GS | Herborg Arnardóttir | GR |
2002 | Sigurpáll Geir Sveinsson | GA | Ólöf María Jónsdóttir | GK |
2003 | Birgir Leifur Hafþórsson | GKG | Ragnhildur Sigurðardóttir | GR |
2004 | Birgir Leifur Hafþórsson | GKG | Ólöf María Jónsdóttir | GK |
2005 | Heiðar Davíð Bragason | GKj. | Ólöf María Jónsdóttir | GK |
2006 | Birgir Leifur Hafþórsson | GKG | Nína Björk Geirsdóttir | GKj. |
2007 | Birgir Leifur Hafþórsson | GKG | Nína Björk Geirsdóttir | GKj. |
2008 | Hlynur Geir Hjartarson | GOS | Ólöf María Jónsdóttir | GK |
2009 | Ólafur Björn Loftsson | NK | Valdís Þóra Jónsdóttir | GL |
2010 | Birgir Leifur Hafþórsson | GKG | Tinna Jóhannsdóttir | GK |
2011 | Ólafur Björn Loftsson | NK | Ólafía Þórunn Kristinsdóttir | GR |
2012 | Haraldur Franklín Magnús | GR | ÓIafía Þórunn Kristinsdóttir | GR |
2013 | Birgir Leifur Hafþórsson | GKG | Sunna Víðisdóttir | GR |
2014 | Birgir Leifur Hafþórsson | GKG | Ólafía Þórunn Kristinsdóttir | GR |
2015 | Birgir Leifur Hafþórsson | GKG | Ólafía Þórunn Kristinsdóttir | GR |
2016 | Birgir Leifur Hafþórsson | GKG | Ólafía Þórunn Kristinsdóttir | GR |
2017 | Axel Bóasson | GK | Ólafía Þórunn Kristinsdóttir | GR |