Eins og fram hefur komið á golf.is eru margir golfvellir landsins búnir að opna inn á sumarflatir. Nýverið var opnað inn á sumarflatir á Gufudalsvelli hjá Golfklúbbi Hveragerðis.
Í tilkynningu frá GHG segir að golfskálinn verði opinn um helgar í apríl og maí, og einnig á almennum frídögum.
Allir eru velkomnir í Gufudal til að spila golf utan opnunartíma golfskálans. Greiða þarf flatargjöld með því að leggja inn á reikning klúbbsins, uppl. um reikningsnúmer GHG er að finna í glugga á golfskálanum.