Um næstu helgi fer fram Íslandsmótið í holukeppni, ORIGO bikarinn, sem er jafnframt fimmta mótið á þessu tímabili á Eimskipsmótaröðinni. Athygli er vakin á því að þeir keppendur sem eru með keppnisrétt þurfa að skrá sig til leiks. Þeir keppendur sem eru ekki á meðal þeirra stigahæstu geta einnig skráð sig til leiks – og verður þeim raðað inn í mótið samkvæmt stöðu þeirra á stigalista ef stigahæstu kylfingarnir nýta ekki keppnisréttinn.
Íslandsmótið í holukeppni, ORIGO bikarinn, fer fram hjá Golfklúbbi Suðurnesja dagana 29. júní.- 1. júlí.
Samkvæmt reglugerð um mótið hafa 32 stigahæstu kylfingar í karlaflokki og 24 stigahæstu kylfingar í kvennaflokki rétt til þátttöku.
Stigalistinn fyrir Íslandsmótið í holukeppni, Origo-bikarinn er hér.
Að auki hafa þátttökurétt Íslandsmeistarar í holukeppni 2017, þrír efstu Íslendingarnir á heimslista atvinnumanna og þrír efstu Íslendingarnir á heimslista áhugamanna 14 dögum áður en mótið hefst. Ef ekki er full skráning í öðrum hvorum flokknum, geta kylfingar skráð sig til þátttöku án stiga og raðast þeir inn í mótið eftir forgjöf í samræmi við reglugerð um stigamót.
Þátttakendur skulu skrá sig í mótið á golf.is fyrir kl.23:59 á þriðjudegi fyrir mót.