Dómaranefnd GSÍ boðar til haustfundar golfdómara laugardaginn 27. október kl. 9:00 – 13:00
Fundurinn verður haldinn í íþróttamiðstöðinni í Laugardal.
Dagskrá:
- Dagskrá vetrarins
- Nýjar golfreglur 2019
- Hegðunarreglur á GSÍ mótum
- Stefnumótun GSÍ – Áherslur og sjónarmið dómara (vinnustofa)
- Önnur mál
Að fundi loknum býður GSÍ til hádegisverðar í íþróttamiðstöðinni.
Bein netútsending frá fundinum á þessari slóð:
Allir starfandi golfdómarar eru hvattir til að mæta.
Til að auðvelda undirbúning eru þeir sem ætla að mæta á staðinn beðnir um að láta vita til domaranefnd@golf.is (ef þú ert ekki þegar búinn að tilkynna þig)
Kveðja,
Dómaranefnd GSÍ