Atvinnukylfingurinn Guðmundur Ágúst Kristjánsson endaði í öðru sæti á atvinnumótaröð sem fram fer á Spáni.
Mótið fór fram á Westin La Quinta en mótaröðin heitir Gecko mótaröðin sem er spænsk mótaröð.
Guðmundur Ágúst lék hringina tvo á -8 samtals (65-69) og var fjórum höggum frá efsta sætinu.
Tæplega 50 keppendur tóku þátt og þar á meðal Íslendingurinn Þórir Björgvinsson.