/

Deildu:

Auglýsing

Fimm íslenskir kylfingar kepptu á Nordic Tour atvinnumótaröðinni. SGT Winter Series Lumine Hills Open. Lokahringurinn fór fram í dag en keppt var á Lumine golfsvæðinu á Spáni. Keppnisvellirnir voru tveir, Hills og Lakes.

GR-ingarnir þrír, Guðmundur Ágúst Kristjánsson, Haraldur Franklín Magnús og Andri Björnsson. Íslandsmeistarinn 2018, Axel Bóasson úr GKG, og Aron Bergsson var fimmti íslenski kylfingurinn.

Haraldur Franklín náði besta árangrinum en hann endaði í 10. sæti á -5 samtals (68-74-68).

Guðmundur Ágúst Kristjánsson endaði í 27. sæti á -1 samtals (72-69-73).


Andri, Aron og Axel komust ekki í gegnum niðurskurðinn.

Andri lék á +6 (74-76), Aron var á +8 (69-82) og Axel lék á +11 (78-76).

Aron er búsettur í Svíþjóð en hann keppti fyrir GKG síðast þegar hann tók þátt á Íslandsmótinu í höggleik. Aron er bróðir Andreu Bergsdóttur, sem hefur leikið fyrir Íslands hönd, á undanförnum misserum.

Lokastaðan er hérna:

Aron Bjarki Bergsson Myndsethgolfis
Símamótið 2016
Andri Þór Björnsson GR og Theodór Emil Karlsson GM
Axel Bóasson GK Myndsethgolfis
Guðmundur Ágúst Kristjánsson Myndsethgolfis
Haraldur Franklín Magnús Myndsethgolfis

 

 

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ