Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfingur úr GR, endaði í 65. sæti á +17 samtals á Symetra atvinnumótaröðinni sem fram fór um s.l. helgi.
Mótið heitir Beaumount og fer það fram í Kaliforníu og hófst það á föstudag.
Ólafía lék fyrstu tvo hringina á +3 (74-73) en þeir keppendur sem léku á +6 eða betur komust áfram í gegnum niðurskurðinn. Ólafía lék lokahringinn á 86 höggum eða +14 og endaði hún í 65. sæti.
Þetta er annað mótið hjá Ólafíu Þórunni á Symetra mótaröðinni á þessu tímabili – en mótaröðin er næst sterkasta mótaröðin í Bandaríkjunum á eftir LPGA.
Ólafía hefur einnig leikið á tveimur úrtökumótum fyrir mót á LPGA mótaröðinni.
Ólafía Þórunn komst ekki í gegnum niðurskurðinn á fyrsta mótinu á þessu tímabili.