Eftir uppfærslu á vélbúnaði mitt.golf.is í morgun kom upp bilun í innskráningu.
Unnið var að bilanagreiningu og lagfæringum. Ekki hafa komið fram frekari hnökrar frá klukkan 14:30.
Áfram verður unnið að lagfæringum og ekki hægt að útiloka frekari hnökra á meðan á þeim stendur.
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.