Samningur GSÍ við RÚV hefur nú verið endurnýjaður til næstu þriggja ára og mun RÚV því sýna árlega á samningstímanum frá Íslandsmótinu í golfi í beinni útsendingu.
„Samstarfið við RÚV hefur gengið mjög vel undanfarin ár og Golfíþróttinni verið gerð góð skil í þessu samstarfi.
Með samningnum getum við haldið áfram að þróa í sameiningu enn betri útsendingu frá umfangsmesta viðburði ársins sem er Íslandsmótið í golfi en í ár verður mótið haldið í Mosfellsbæ nánar tiltekið hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar dagana 6.-9. ágúst.
„Nýr samningur við RÚV er mikið ánægjuefni fyrir golfhreyfinguna en samstarfið hefur verið virkilega gott og metnaðarfullt undanfarin ár,” segir Brynjar Eldon Geirsson framkvæmdastjóri GSÍ