Haraldur Franklín Magnús, GR, endaði 57. sæti á atvinnumótinu sem fram fór á Ítalíu. Mótið var hluti af Áskorendamótaröðinni, Challenge Tour. Lokaumferð mótsins var felld niður vegna veðurs. Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR, komst ekki í gegnum niðurskurðinn á þessu móti.
Haraldur Franklín lék á -3 samtals (71-70-72) 213 höggum. Þrír kylfingar voru jafnir á -13 og sigraði Hurly Long frá Þýskalandi eftir bráðabana.
Haraldur Franklín fór upp um 7 sæti á peningalista mótaraðarinnar og er hann í sæti nr. 105. Guðmundur Ágúst Kristjánsson er í sæti nr. 37 eftir mótið á Ítalíu.
Áskorendamótaröðin er næst sterkasta atvinnumótaröð Evrópu og 20 efstu á stigalistanum í lok keppnistímabilsins tryggja sér keppnisrétt á Evrópumótaröðinni á næsta tímabili.
Næstu þrjú mót fara öll fram á Spáni, og lokamótið fer fram á Mallorca dagana 19.-22. nóvember. Næstu tvö mót á eftir mótinu á Ítalíu fara bæði fram á Novo Sancti Petri velllinum á Spáni – sem er vel þekkt „Íslendingasvæði“ en þar hafa fjölmargir íslenskir kylfingar leikið á undanförnum árum í skipulögðum golfferðum.
Aðeins 45 stigahæstu kylfingarnir komast inn á lokamótið og er Guðmundur Ágúst Kristjánsson í ágætri stöðu varðandi lokamótið. Guðmundur Ágúst er í 37. sæti eins og er á stigalistanum. Haraldur Franklín er í sæti nr. 105 en á samt sem áður möguleika á að bæta stöðu sína á næstu mótum.
Birgir Leifur Hafþórsson, sjöfaldur Íslandsmeistari í golfi, er eini íslenski atvinnukylfingurinn í karlaflokki sem hefur komist inn á lokamótið á Áskorendamótaröðinni. Birgir Leifur var í 35. sæti fyrir lokamótið en endaði í 37. sæti á lokastigalistanum. Það er besti árangur sem íslenskur kylfingur hefur náð á Áskorendamótaröðinni.
Birgir Leifur er eini íslenski karlkylfingurinn sem hefur komist inn á sterkustu atvinnumótaröð Evrópu með fullan keppnisrétt.
Aðeins fimm íslenskir karlkylfingar hafa verið með keppnisrétt á Áskorendamótaröðinni frá árinu 1999 þegar Birgir Leifur braut ísinn.
Birgir Leifur á 16 keppnistímabil að baki á Áskorendamótaröðinni og alls 155 mót. Besti árangur hans er 1. sæti árið 2017 á móti í Frakklandi og er það eini sigur hans á næst sterkustu atvinnumótaröð Evrópu.
Árið 2002 lék Björgvin Sigurbergsson, GK, á 11 mótum á Áskorendamótaröðinni og endaði í 179. sæti á stigalistanum.
Axel Bóasson, GK, lék á 16 mótum árið 2018 og endaði í sæti nr. 224 á stigalistanum.
Guðmundur Ágúst, GR, er á sínu öðru tímabili á Áskorendamótaröðinni. Hann lék á 6 mótum í fyrra og endaði í sæti nr. 109 á stigalistanum.
Haraldur Franklín, GR, er á sínu fyrsta tímabili á Áskorendamótaröðinni.
Mótin sem eru framundan á Áskorendamótaröðinni eru:
5.-8. nóvember:
Iberostar Real Club de Golf Novo Sancti Petri, Cadiz.
11.-14. nóvember:
Iberostar Real Club de Golf Novo Sancti Petri, Cadiz.
19.-22. nóvember:
T-Golf & Country Club, Mallorca, Baleares.