Hvernig líður hinsegin ungu fólk í íþróttum? Eru íþróttir fyrir alla? Þessum spurningum og öðrum verður svarað fimmtudaginn 4. febrúar í Háskólanum í Reykjavík kl. 13:00 – 16:00.
Ráðstefnan er hluti af Reykjavíkurleikunum (RIG).
Vegna samkomutakmarkana verður ekki hægt að mæta í sal en ráðstefnunni verður streymt á Youtube rás leikana.
Nánari upplýsingar og dagskrá er hægt að finna á rig.is og facebook. Streymið er opið öllum en við hvetjum alla til að skrá sig hér.
Að ráðstefnunni standa: Íþróttabandalag Reykjavíkur, íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Ungmennafélag Íslands, Háskólinn í Reykjavík og RIG – Reykjavík International Games.
MEGIN ÁHERSLUR RÁÐSTEFNUNNAR:
- Niðurstöður rannsóknar um viðhorf hinsegin fólks í íþróttum
- Frístundastarf í Breiðholti – tilraunaverkefni
- Barnvænt samfélag á Akureyri
- Verkferlar og leiðbeiningar um kynferðislegt ofbeldi og kynferðislega áreitni í íþróttum
- Reynslusögur íþróttafólks
FYRIRLESARAR:
Arna Sigíður Albertsdóttir, Birta Björnsdóttir, Hrafnhildur Guðjónsdóttir, Tótla I Sæmundsdóttir, Þráinn Hafsteinsson og Ingi Þór Jónsson
Boðið verður uppá beina útsendingu á Youtube rás Reykjavíkurleikanna.
Efni frá ráðstefnunni árið 2020 má finna hér, og efni frá fyrri árum hér.