Nýjar reglur um samkomutakmarkanir tóku gildi í dag, 24. febrúar og fela þær í sér umtalsverðar tilslakanir, að tillögu sóttvarnalæknis og með hliðsjón af góðri stöðu á kórónaveirufaraldrinum hér á landi. Nýja reglugerðin gildir til 17. mars nk.
Helstu breytingar varðandi íþróttastarfið í landinu er að nú verður heimilt að hafa áhorfendur aftur á íþróttakappleikjum, að uppfylltum eftirfarandi skilyrðum:
Ef setið er á viðburðinum þá þarf að uppfylla öll eftirfarandi skilyrði:
- Heimiluð nándarmörk milli ótengdra aðila eru nú 1 metri, að uppfylltum skilyrðum.
- Gestir/áhorfendur mega ekki sitja andspænis hver öðrum nema meira en tveir metrar séu á milli þeirra.
- Þátttaka allra gesta/áhorfenda skal skráð þar sem fram kemur nafn, kennitala og símanúmer.
- Allir skulu nota andlitsgrímu.
- Koma verður, eins og kostur er, í veg fyrir hópamyndanir, jafnt fyrir og eftir viðburð og í leikhléi.
Ef áhorfendur eru standandi þá gildir regla um 50 manna hámarksfjölda.
Aðrar breytingar sem varða íþróttastarfið:
- Gestir á sund- og baðstöðum mega vera 75% af leyfilegum hámarksfjölda og gestir heilsu- og líkamsræktarstöðva mega vera 75% af hámarksfjölda en þó 50 manns að hámarki í hverju rými.
- Skíðasvæðum er heimilt að taka á móti 75% af hámarksfjölda af móttökugetu hvers svæðið.
- Fjöldi þátttakenda á æfingum og í keppni barna og ungmenna fædd 2005 og síðar er nú leyfilegur 150.
Nánar má lesa um málið í frétt á vef stjórnarráðsins.
Reglugerð heilbrigðisráðherra sem tekur gildi 24. febrúar og gildir til 17. mars 2021.