Aðalfundur Golfklúbbs Selfoss, GOS, fór fram þann 25. febrúar s.l. í félagsaðstöðu klúbbsins við Svarfhólfsvöll. Rekstur GOS á árinu 2020 gekk vel og sagði Páll Sveinsson formaður GOS í ræðu sinni að árið 2020 hafi verið eftirminnilegt í alla staði. Framundan er 50 ára afmælisár hjá GOS en klúbburinn fagnaði hálfrar aldar afmæli þann 21. janúar s.l. Þetta kemur fram í tilkynningu frá klúbbnum.
Ný og glæsileg inniaðstaða var opnuð í byrjun ársins, miklar framkvæmdir hafa átt sér stað á golfvellinum og uppbygging á framtíðarsvæði GOS er í gangi. Rekstrartekjur GOS námu rúmlega 84 milljónum kr. en rektrargjöld voru 69,3 milljónir kr. Hagnaður eftir afskriftir og fjármagnsliði var tæplega 4,6 milljónir kr. Töluverð fjölgun félagsmanna var á árinu 2020 hjá GOS og var framkvæmdastjóra GOS, Hlyni Geir Hjartarsyni, færðar þakkir fyrir mikið og gott starf.
Nýtt aðsóknarmet var sett á Svarfhólsvelli sumarið 2020.
Alls mættu um 110 nýliðar á námskeið hjá GOS sumarið 2020.
Á tímabilinu 1. maí – 1. nóvember 2020 voru bókaðir 23.186 rástímar en árið 2019 voru bókaðir 14.086 rástímar – sem er 64 % aukning á skráðum hringjum milli ára.
Flesta hringi í sumar lék Þorkell Ingi Sigurðsson 166 hringi, Arnór Ingi Gíslason félagi Þorkels spilaði aðeins færri hringi eða 157 hringi.
Mjög góð þátttaka var í mótum ársins en aðeins færri mót voru en síðustu ár, 946 keppendur skráðu sig í mót sumarsins,
Páll sagði ennfremur að samstarfið við Sveitarfélagið Árborg vegna uppbyggingar á Svarfhólssvæðinu hafi verið gott. Svæðið mun án efa verða eitt glæsilegasta golf- og útivistarsvæði landsins þegar framkvæmdum lýkur. Páll minntist á góðan félagsanda sem er hvetjandi og skemmtilegt og verður vonandi þannig um ókomna tíð. Óskaði hann félagsmönnum til hamingju með 50 ára afmæli klúbbsins sem var í 21.janúar síðastliðnum og til hamingju með frábært golfár 2020.
- Hlynur Geir Hjartarson framkvæmdastjóri lagði fram ársreikning golfklúbbsins og fór yfir skýringar og sundurliðanir hans.
- Rekstrartekjur urðu kr 84.048.698,-
- Rekstrargjöld urðu kr. 69.312.881,-
- Fjármagnstekjur/gjöld urðu kr. -2.369.343,-
- Hagnaður fyrir afskriftir varð kr. 14.735.817,-
- Hagnaður ársins eftir afskriftir og fjármagnsliði varð kr. 4.566.197,-
- Eignir eru kr. 92.249.159,-
- Langtímaskuldir eru kr. 38.700.000,-
- Skammtímaskuldir eru kr. 30.788.436,-
- Eigið fé er kr. 22.760.723,-
- Eigið fé og skuldir kr. 92.249.159,-
Ýmsar viðurkenningar voru veittar á aðalfundinum.
Afhenti Páll formaður styrki úr afreks- og styrktarsjóði GOS, í samstarfi við Árborg. Styrkina hlutu: Aron Emil Gunnarsson, Pétur Sigurdór Pálsson, Heiðar Snær Bjarnason, Andri Már Óskarsson og Heiðrún Anna Hlynsdóttir.
- Háttvísibikarinn hlýtur Svanur Geir Bjarnason.
- Efnilegasti unglingurinn var kosinn Katrín Embla Hlynsdóttir.
- Golfkarl ársins er Andri Már Óskarsson.
- Golfkona ársins er Heiðrún Anna Hlynsdóttir.