Guðrún Brá Björgvinsdóttir, atvinnukylfingur úr Keili Hafnarfirði, hóf leik í morgun á LET Evrópumótaröðinni.
Að þessu sinni er leikið á Skafto vellinum í Svíþjóð.
Nánari upplýsingar um rástíma, skor og úrslit – smelltu hér.
Þetta er 11. mótið hjá Guðrúnu Brá á tímabilinu. Besti árangur hennar er 12. sæti.
Guðrún Brá er í 84. sæti á stigalista LET Evrópumótaraðarinnar. Það eru 9 mót eftir á keppnistímabilinu á LET Evrópumótaröðinni. Næsta mót fer einnig fram í Svíþjóð í næstu viku.