Guðmundur Ágúst Kristjánsson og Haraldur Franklín Magnús hófu báðir leik í gær á Áskorendamótaröðinni.
Mótið fer fram í Hollandi en mótaröðin, ChallengeTour er í næst efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í Evrópu.
GR-ingarnir léku báðir á 69 höggum eða 2 höggum undir pari á fyrsta keppnisdeginum.
Þeir eru á meðal 30 efstu en þeir hefja báðir leik um hádegi í dag á öðrum keppnisdegi mótsins.