Í gær fór fram kynningarfundur Golfsambands Íslands þar sem að helstu viðburðir GSÍ voru kynntir – en framundan er spennandi 80 ára afmælisár.
Fundurinn fór fram í íþróttamiðstöð GKG og eru helstu atriði fundarins að finna í frétt hér fyrir neðan.
Á fundinn mætti góður hópur af fyrrum Íslandsmeisturum í kvenna – og karlaflokki en þeim var boðið til þess að kynna breytingar sem gerðar voru á reglugerð Íslandsmótsins fyrir ári síðan.
Reglugerðinni hefur verið breytt með þeim hætti að fyrrum Íslandsmeistarar í golfi eru ávallt með keppnisrétt á Íslandsmótinu í golfi, að því gefnu að uppfylla forgjafarskilyrði mótsins, sem eru 5,5 hjá körlum og 8,5 hjá konum.