Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GKG, og Haraldur Franklín Magnús, GR eru báðir á meðal keppenda á Farmfoods Scottish Challenge mótinu sem fram fer dagana 26.-29. maí rétt við borgina Aberdeen í Skotlandi.
Mótið er hluti af Áskorendamótaröðinni, Challenge Tour, sem er í næst efsta styrkleikaflokki á eftir sjálfri DP Evrópumótaröðinni.
Mótið hófst fimmtudaginn 26. maí og verða leiknir fjórir hringir á fjórum keppnisdögum.
Haraldur Franklín Magnús er í toppbaráttunni eftir fyrsta hringinn þar sem hann lék á 5 höggum undir pari – og er hann jafn í 4. sæti þessa stundina, tveimur höggum frá efsta sætinu.
Nánari upplýsingar um mótið, rástímar, staða og úrslit:
Á þessu tímabili hefur Haraldur Franklín leikið á sex mótum á Áskorendamótaröðinni. Hann hefur komist í gegnum niðurskurðinn á einu móti og þar var hann nálægt sigri og endaði í 3. sæti.
Haraldur Franklín er í 28. sæti á stigalistanum.
Í fyrra endaði Haraldur Franklín í 48. sæti á stigalistanum og var hársbreidd frá því að komast inn á lokamót Áskorendamótaraðarinnar þar sem að 45 efstu keppendurnir kepptu um 20 efstu sætin sem tryggðu þeim keppnisrétt á sjálfri Evrópumótaröðinni. Haraldur Franklín lék á alls 19 mótum í fyrra og fékk alls 35,816 stig.
Guðmundur Ágúst hefur leikið á sex mótum á þessu tímabili á Áskorendamótaröðinni og komist í gegnum niðurskurðinn á tveimur þeirra. Besti árangur hans er 11. sæti og hann hefur einnig endað í 14. sæti. Guðmundur Ágúst er í sæti nr. 111 þessa stundina á stigalista Áskorendamótaraðarinnar.
Aðeins tveir kylfingar frá Íslandi hafa komist inn á lokamót Áskorendamótaraðarinnar – Birgir Leifur Hafþórsson og Guðmundur Ágúst Kristjánsson.
Guðmundur Ágúst endaði í 46. sæti árið 2020.
Birgir Leifur endaði í 35. sæti árið 2017.
Áskorendamótaröðin var sett á laggirnar árið 1989. Frá þeim tíma hafa margir þekktir kylfingar nýtt sér mótaröðina sem stökkpall inn á Evrópumótaröðina – DP Tour. Þar má nefna Thomas Bjørn (1995), Justin Rose (1999), Ian Poulter (1999), Henrik Stenson (2000), Louis Oosthuizen (2003), Tommy Fleetwood (2011) og Brooks Koepka (2013).