Golfsamband Íslands auglýsir eftir áhugasömum sjálfboðaliðum til þess að aðstoða við framkvæmd Íslandsmóta, en um er að ræða fjölbreytta teymisvinnu í skemmtilegu umhverfi.
Æskilegt er að eftirfarandi fylgi umsókn:
- Lýsing á reynslu viðkomandi í mótahaldi (ræsing, dómgæsla, móttaka skorkorta o.s.frv.)
- Lýsing á þekkingu.
Vinsamlegast sendið umsóknir á motanefnd@golf.is, en öllum umsóknum verður svarað.