Fjóla Margrét Viðarsdóttir, GS og Markús Marelsson, GK, leika næstu daga á alþjóðlega Opna unglingamótinu, The Junior Open championship, sem fram fer á Monifieth vellinum í Skotlandi.
Keppnisvöllurinn er í um 30 mínútna akstursfjarlægð frá St. Andrews vellinum þar sem að Opna mótið hefst á fimmtudag.
The Junior Open championship var sett á laggirnar árið 1994 og hefur R&A í Skotlandi verið framkvæmdaraðili mótsins frá árinu 2000.
Golfsamböndum sem eru undir hatti R&A er boðið að senda leikmenn 16 ára og yngri í þetta mót. R&A hefur gætt þess að The Junior Open championship fari alltaf fram á golfvelli sem er í næsta nágrenni við keppnisvöll The Open.