/

Deildu:

Auglýsing

Í tilefni 80 ára afmælis Golfsambands Íslands á þessu ári hefur sambandið framleitt hlaðvarpsþætti þar sem að fjallað verður um golfíþróttina frá ýmsum hliðum.

Markmiðið er að nýta þetta form miðlunar til þess að koma upplýsingum úr innra starfi GSÍ á framfæri. Golfsambandið hefur í gegnum tíðina nýtt ýmis form til þess að miðla upplýsingum og fréttum úr starfi golfhreyfingarinnar.

Tímaritsútgáfa er ekki lengur til staðar en þess í stað eru notaðar rafrænar leiðir til þess að miðla upplýsingum, á golf.is, í rafrænu fréttabréfi, samfélagsmiðlum og í nýjum hlaðvarpsþáttum.

Í þessum hlaðvarpsþætti er Edwin Roald golfvallahönnuður í viðtali. Edwin fer yfir ýmis áhugaverð málefni sem tengjast golfíþróttinni, hönnun valla, hvaða möguleikar eru fyrir nýja velli, aðgengi að golfvöllum. Hann veltir einnig upp áhugaverðum spurningum um lengd golfvalla og skemmtanagildi fyrir stóran hóp kylfinga á Íslandi. Lýðheilsumál eru einnig til umfjöllunar.

Kristín María Þorsteinsdóttir, móta – og kynningarstjóri GSÍ og Sigurður Elvar Þórólfsson, útbreiðslustjóri GSÍ hafa umsjón með hlaðvarpi GSÍ.


Hér er einnig hægt að hlusta á hlaðvarpið við Edwin – smelltu hér:



Hér er einnig hægt að hlusta á hlaðvarpið við Úlfar – smelltu hér:


Hér er fyrsti hlaðvarpsþátturinn á vegum GSÍ, viðtal við Huldu Bjarnadóttur, forseta sambandsins.


Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ