Íslandsmót unglinga í holukeppni 2022 fer fram á Hlíðavelli í Mosfellsbæ dagana 27.-29. ágúst.
Leikin er útsláttarkeppni án forgjafar:
- 1. umferð laugardagur: 16 manna holukeppni (ATH 19-21 árs flokkar spila 8 manna úrslit einnig á laugardegi)
- 2. umferð sunnudagur: 8 manna holukeppni þeirra sem áfram komast
- 3. umferð sunnudagur: Undanúrslit, 4 manna holukeppni þeirra sem áfram komast
- 4. umferð mánudagur: Úrslit, leikur um 3. sæti og úrslitaleikur
Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit leikja:
Smelltu hér fyrur upplýsingar um mótið.
Röðun leikmanna í 16 manna úrslitum er samkvæmt skráningarröð þátttakenda (þátttökuréttur).
Stigahæsti leikmaður á stigamótaröð unglinga leikur við þann stigalægsta (eða leikmanninn með hæstu forgjöf kl. 8:00 morguninn eftir að skráningarfresti lýkur ef teknir eru inn leikmenn án stiga á stigamótaröðinni), leikmaðurinn með næst flest stiga á stigamótaröð unglinga leikur við þann næst stigalægsta (eða leikmanninn með næst hæstu forgjöf kl. 8:00 morguninn eftir að skráningarfresti lýkur ef teknir eru inn leikmenn án stiga á stigamótaröðinni) o.s.frv.
Þátttökurétt í hverjum flokki hafa, í þessari röð:
- Sextán stigahæstu leikmenn á stigamótaröð unglinga þegar skráningarfrestur rennur
út. Séu leikmenn jafnir í sæti á stigamótaröðinni telst sá ofar sem náð hefur efra sæti
á öðrum stigamótum ársins. Séu leikmenn þá enn jafnir ræður hlutkesti. - Aðrir leikmenn með stig á stigamótaröð unglinga þegar skráningarfrestur rennur út.
Röð ákvarðast af sætum á stigamótaröðinni. Séu leikmenn jafnir í sæti á stigamótaröðinni telst sá ofar sem náð hefur efra sæti á öðrum stigamótum ársins. Séu leikmenn þá enn jafnir ræður hlutkesti. - Aðrir leikmenn sem uppfylla þátttökuskilyrði. Röð ákvarðast af forgjöf kl. 8:00 morguninn eftir að skráningarfresti lýkur. Standi val á milli leikmanna með sömu forgjöf skal hlutkesti ráða.
Keppt er í eftirtöldum flokkum, aldur miðast við almanaksár.
- Stelpnaflokkur 12 ára og yngri – rauðir teigar
- Stelpnaflokkur 13-14 ára – rauðir teigar
- Telpnaflokkur 15-16 ára – bláir teigar
- Stúlknaflokkur 17-18 ára – bláir teigar
- Stúlknaflokkur 19-21 árs – bláir teigar
- Strákaflokkur 12 ára og yngri – rauðir teigar
- Strákaflokkur 13-14 ára – bláir teigar
- Drengjaflokkur 15-16 ára – gulir teigar
- Piltaflokkur 17-18 ára – hvítir teigar
- Piltaflokkur 19-21 árs – hvítir teigar
Verði forföll fyrir fyrsta keppnisdag verður haft samband við kylfinga á biðlista og þeim boðin þátttaka. Kylfingar á biðlista geta mætt á keppnisstað að morgni fyrsta keppnisdags og verið til taks ef forföll verða. Viðkomandi þurfa að gefa sig fram við afgreiðslu.
Verði forföll eftir að leikröð hefur verið auglýst skal leikmanni á biðlista boðið að taka sæti þess sem forfallaðist, en leikröð er ekki ákvörðuð að nýju.
Æfingahringur
Einn æfingahringur er innifalinn í mótsgjaldi. Keppnisvöllurinn verður opinn til æfinga fyrir skráða keppendur í síðasta lagi einum degi fyrir mót. En athugið að greiða verður mótsgjaldið áður en æfingahringur er leikinn.
Bóka þarf æfingahringi í síma 566 6999 eða með tölvupósti á golfmos@golfmos.is
Verðlaun
Veitt verða verðlaun fyrir 1. – 3. sæti í öllum flokkum.
Verðlaunaafhending
Verðlaunaafhendingin fer fram hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar, en hér eru nánari upplýsingar:
Fyrri verðlaunaafhending (U12 kk+kvk, 13-14 kk+kvk) er áætluð um kl. 13:00 (eða 15 mínútum eftir að síðasta leik lýkur í 13-14 kk).
Seinni verðlaunaafhending (15-16 kk+kvk, 17-18 kk+kvk, 19-21 kk) er áætluð um kl. 14:30 (eða 15 mínútum eftir að síðasta leik lýkur í 19-21 kk).
Hér má sjá stöðu á stigalistum.
Dómarar: Sigurður Geirsson, Davíð Baldur Sigurðsson
Mótsstjórn: Ágúst Jensson, Davíð Gunnlaugsson, Kristín María Þorsteinsdóttir, Brynjar Geirsson.
Birt með fyrirvara um breytingar.