Frá vinstri: Hjalti Hlíðberg, Logi, Björn Viktor. Mynd/Frosti.
Auglýsing

Logi Sigurðsson, GS, er stigameistari 2022 á unglingamótaröð GSÍ í flokki 19-21 ára. Björn Viktor Viktorsson, GL, varð annar og Hjalti Hlíðberg Jónasson, GKG, varð þriðji.

Logi tók þátt á fjórum af alls fimm mótum tímabilsins. Hann sigraði á þremur þeirra og þar á meðal á Íslandsmótinu í höggleik. Hann varð þriðji á Íslandsmótinu í holukeppni.

Björn Viktor sigraði á einu af fjórum mótum sem hann tók þátt á tímabilinu. Hann fagnaði sigri á Íslandsmótinu í holukeppni. Hann varð annar á einu móti og í fjórða sæti á Íslandsmótinu í höggleik.

Hjalti Hlíðberg tók þátt á þremur mótum af alls fimm. Hann varð annar á Íslandsmótinu í höggleik og í fjórða sæti á tveimur mótum.

Smelltu hér fyrir stigalistann í heild sinni:

<strong>Frá vinstri Hjalti Hlíðberg Logi Björn Viktor MyndFrosti <strong>

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ