Auglýsing

Guðmundur Ágúst Kristjánsson, atvinnukylfingur úr GKG, náði þeim frábæra árangri í dag að tryggja sér keppnisrétt á sterkustu atvinnumótaröð Evrópu í karlaflokki, DP World Tour.

Guðmundur Ágúst er aðeins annar íslenski kylfingurinn sem nær þessum árangri – en Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, náði tvívegis að komast í gegnum lokaúrtökumótið á Evrópumótaröðinni, DP World Tour. Fyrst árið 2006 og aftur ári síðar.

Lokaúrtökumótinu lauk í dag þegar sjötti keppnisdagurinn fór fram.

Guðmundur Ágúst lék hringina sex á samtals -18 og endaði í 19.-23 sæti.

Til þess að fá keppnisrétt á DP World Tour á næsta tímabili, 2023, þurftu keppendur að vera í einu af 25 efstu sætunum á lokaúrtökumótinu.

Guðmundur Ágúst mun hefja tímabilið á DP World Tour þann 24. nóvember þar sem Joburg Open mótið fer fram í Jóhannesarborg í Suður-Afríku. Mótið stendur yfir dagana 24.-27. nóvember.

Þetta var í annað sinn sem Guðmundur Ágúst nær að komast inn á lokaúrtökumótið. Hann var einnig í þessari stöðu árið 2019 þar sem hann náði ekki í gegnum niðurskurðinn eftir fjórða keppnishringinn.

Bjarki Pétursson, GKG, komst einnig inn á lokaúrtökumótið en hann náði sér ekki á strik og komst ekki áfram.

Smelltu hér fyrir stöðu og úrslit á lokaúrtökumótinu.

Alls voru 153 keppendur sem komust inn á lokaúrtökumótið – um helmingur þeirra kom í gegnum 2. stig úrtökumótsins líkt og þeir Bjarki og Guðmundur gerðu. Hinn helmingurinn kom frá DP Evrópumótaröðinni, kylfingar sem náðu ekki að halda keppnisrétti sínum, á þessu tímabili.

Keppnisdagarnir eru alls 6 á lokaúrtökumótinu sem fram fór á Infinitum golfsvæðinu sem er rétt við bæinn Tarragona á Spáni og í næsta nágrenni við þekkt sumardvalarsvæði, Salou.

Fyrst voru leiknir fjórir hringir, tveir þeirra á Lakes vellinum og tveir á Hills vellinum. Eftir fjórða hringinn var niðurskurður þar sem að um helmingur keppenda fékk tækfæri að leika á síðustu tveimur keppnisdögunum – en tveir síðustu hringirnir eru leiknir á Lakes vellinum. Að loknum sjötta keppnisdegi fengu 25 efstu keppnisrétt á DP Evrópumótaröðinni

Þetta er í annað sinn sem Bjarki og Guðmundur Ágúst komast inn á lokaúrtökumótið – en þeir léku á því móti árið 2019. Bjarki glímdi við bakmeiðsli á lokaúrtökumótinu sem endurspeglaðist í leik hans – en Bjarki náði sér alls ekki á strik eftir frábæran árangur á 2. stigi úrtökumótsins.

5. keppnisdagur:

Guðmundur Ágúst lék vel á fimmta hringnum á Lakes vellinum þar sem hann fékk fjóra fugla og tapaði ekki höggi, 67 högg niðurstaðan. Guðmundur Ágúst er í 16.-19. sæti fyrir lokahringinn sem fram fer miðvikudaginn 16. nóvember. Þar verður leikið á Lakes vellinum en á þeim velli hefur Guðmundur Ágúst leikið mun betur en á Hills vellinum. Samtals er GKG-ingurinn á -17 og hefur Guðmundur leikið samtals á -16 á þremur hringjum á Lakes vellinum og -1 samtals á tveimur hringnum á Hills vellinum.

Það er spennandi lokahringur framundan. Alls fá 25 efstu í mótslok keppnisrétt á DP World Tour eða Evrópumótaröðinni, og þeir sem eru í sætum 26.-40 fá takmarkaðan keppnisrétt á sömu mótaröð. Aðeins einn karlkylfingur hefur náð að komast í gegnum lokaúrtökumótið og tryggt sér keppnisrétt á sterkustu mótaröð Evrópu í karlaflokki. Það gerði Birgir Leifur Hafþórsson árið 2006 og einnig árið 2007. Guðmundur Ágúst er í góðri stöðu að fylgja í fótspor Birgis Leifs.

4. keppnisdagur:

Guðmundur Ágúst lék vel á fjórða hringnum eða 66 höggum eða 5 höggum undir pari. Hann er samtals á 13 höggum undir pari fyrir lokahringina tvo. Guðmundur Ágúst er í 12. sæti og er í góðri stöðu varðandi 25 efstu sætin sem tryggja keppnisrétt á DP World Evrópumótaröðinni, sterkustur atvinnumótröð Evrópu í karlaflokki. Guðmundur Ágúst hefur leikið betur á Lakes vellinum það sem af er þessu móti – sem er jákvætt því lokahringirnir á mótinu fara fram á þeim velli.

Bjarki Pétursson er úr leik en hann náði sér alls ekki á strik á þessu móti eftir frábæran árangur á 2. stigi úrtökumótsins fyrir tveimur vikum. Bjarki lék á 21 höggi yfir pari vallar og endaði í 150. sæti.

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit á lokaúrtökumótinu.

3. keppnisdagur:

Guðmundur Ágúst er í 17.-23. sæti á -8 samtals eftir 54 holur. Hann lék á einu höggi yfir pari á þriðja hringnum þar sem hann fékk einn fugl og tvo skolla. Keppni er hálfnuð og ljóst að Guðmundur Ágúst kemst örugglega í gegnum niðurskurðinn fyrir tvo síðustu keppnisdagana. Hann er sem stendur á meðal 25 efstu og er í baráttunni að tryggja sér keppnisrétt á sterkustu atvinnumótaröð Evrópu. Aðeins einn íslenskur kylfingu hefur náð að tryggja sér keppnisrétt á DP World Evrópumótaröðinni. Það gerði Birgir Leifur Hafþórsson í nóvember árið 2007.

Bjarki Pétursson lék á 1 höggi yfir pari á þriðja hringnum. Hann er í 154. sæti á +17 yfir pari og mun ekki ná í gegnum niðurskurðinn eftir fjórða keppnishringinn. Bjarki hefur nú þeger tryggt sér takmarkaðan keppnisrétt á Challenge Tour, Áskorendamótaröðinni, með því að komast í gegnum 2. stig úrtökumótsins og inn á lokaúrtökumótið.

2 keppnisdagur:
Guðmundur Ágúst lék mjög vel og er í 2. sæti þegar fjórir hringir eru eftir af mótinu. Hann er á -9 samtals (70-64). Hann fékk alls 8 fugla í dag og tapaði einu höggi á 16. Á fyrstu tveimur hringjunum hefur Guðmundur Ágúst fengið 10 fugla og tvo skolla. Hann er í 2. sæti fyrir þriðja daginn.

Bjarki lék á 82 höggum í dag eða 10 höggum yfir pari. Hann er samtals á 16 höggum yfir pari í 155. sæti.

1. keppnisdagur.
Guðmundur Ágúst lék á 70 höggum eða -2 og Bjarki Pétursson lék á 77 höggum eða +6.

Aðeins fimm íslenskir kylfingar hafa náð inn á lokaúrtökumót Evrópumótaraðarinnar. Birgir Leifur Hafþórsson lék 13 sinnum á lokaúrtökumótinu og er eini íslenski karlkylfingurinn sem hefur tryggt sér keppnisrétt á Evrópumótaröðinni. Björgvin Sigurbergsson lék á lokaúrtökumótinu árið 2001 og árið 2019 var Andri Þór Björnsson á lokaúrtökumótinu líkt og Bjarki og Guðmundur Ágúst.

Alls var keppt á fjórum golfvöllum á Spáni á 2. stigi úrtökumótsins og léku Bjarki og Guðmund Ágúst á sama vellinum – Isla Canela Links í Huelva á Spáni. Haraldur Franklín Magnús, GR, var einnig á meðal keppenda á 2. stiginu á þessum velli en hann var fjórum höggum frá því að komast áfram.

Alls tóku 10 keppendur frá Íslandi á úrtökumótinu fyrir DP Evrópumótaröðina á þessu hausti. Það er jöfun á meti sem sett var árið 2019 en þá léku einnig 10 keppendur frá Íslandi á úrtökumótunum.

Aðrir íslenskir keppendur sem tóku þátt á 1. stigi úrtökumótsins eru: Axel Bóasson, GK, Kristófer Karl Karlsson, GM, Aron Snær Júlíusson, GKG, Hákon Örn Magnússon, GR, Kristófer Orri Þórðarson, GKG, Andri Már Óskarsson, GOS og Ragnar Már Garðarsson.

Bjarki Pétursson, sem varð Íslandsmeistari í golfi 2020, komst í gegnum 1. stig úrtökumótsins á móti sem fram fór á Haugschlag vellinum í Austurríki. Bjarki lék samtals á 7 höggum undir pari vallar, 281 höggi, (72-70-69-70). Bjarki er að taka þátt á úrtökumótinu fyrir DP Evrópumótaröðina í annað sinn á ferlinum – en hann fór alla leið inn á lokaúrtökumótið, eða 3. stigið, árið 2019. Í kjölfarið fékk hann takmarkaðan keppnisrétt á mótaröðinni á þessu tímabili.

Guðmundur Ágúst, sem varð Íslandsmeistari í golfi árið 2019, þurfti ekki að fara í gegnum 1. stig úrtökumótsins en hann hefur leikið á Áskorendamótaröðinni, Challenge Tour, á þessu tímabili. Þetta er í fimmta sinn sem Guðmundur Ágúst keppir á úrtökumótinu fyrir DP Evrópumótaröðina. Hann féll úr á 2. stiginu árið 2016, og næstu tvö ár á eftir féll hann úr leik á 1. stiginu. Árið 2019 komst Guðmundur Ágúst inn á lokaúrtökumótið. Hann fékk keppnisrétt á Áskorendamótaröðinni með góðum árangri á Nordic Tour atvinnumótaröðinni þar sem hann sigraði á þremur mótum á einu tímabili – sem tryggði honum keppnisrétt á næst sterkustu atvinnumótaröð Evrópu.

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit á Isla Canela Links.

Nánar um úrtökumótin hér:

Alls komust 23 keppendur sem léku á Isla Canela Links vellinum áfram á lokaúrtökumótið sem fram fer 11.-16. nóvember á Lakes Course, Infinitum við borgina Tarragona á Spáni.

Bjarki lék á 19 höggum undir pari samtals (65-68-68-68) og endaði hann í 10. sæti.

Guðmundur Ágúst lék á 17 höggum undir pari vallar (69-66-69-67) og endaði hann í 14. sæti.

Haraldur Franklín endaði í 41. sæti á 11 höggum undir pari samtals (66-72-72-67). Hann var fjórum höggum frá því að komast áfram.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ