Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK, og Ragnhildur Kristinsdóttir, GR, luku leik í dag á 1. stigi úrtökumótsins fyrir LET Evrópumótaröðina – sem er í efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í Evrópu í kvennaflokki.
Guðrún Brá lék hringina fjóra á 4 höggum yfir pari samtals (72-77-73-70) og endaði hún í 20. sæti og komst þar með inn á lokaúrtökumótið. Lokahringurinn var besti hringur Guðrúnar þar sem hún lék á tveimur höggum undir pari.
Ragnhildur lék hringina fjóra á +14 samtals og endaði hún jöfn í 81. sæti. Ragnhildur lék á (71-77-72-82) og hefði hún þurft að leika á +10 samtals til þess að komast inn á lokaúrtökumótið.
Keppt var á 1. stigi úrtökumótsins dagana 10.-13. desember og var leikið á tveimur völlum á Real Golf La Manga Club á Spáni. Úrtökumótið fyrir LET Evrópumótaröðina hefur farið fram á Norður- og Suður völlunum á La Manga.
Alls tóku 156 keppendur þátt á 1. stigi úrtökumótsins og komast 62 efstu áfram inn á lokaúrtökumótið. Keppendur sem eru voru í sæti nr. 62 komast inn á lokaúrtökumótið.
Lokaúrtökumótið fer fram á sama svæði dagana 17.-20. desember 2022.
Á lokaúrtökumótinu má gera ráð fyrir að keppendur verði um 130 en í fyrra fengu 23 efstu keppendurnir keppnisrétt á LET Evrópumótaröðinni. Gera má ráð fyrir að svipaður fjöldi fái keppnisrétt eftir lokaúrtökumótið 2022.
Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit.
Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit.
Þetta er í fyrsta sinn sem Ragnhildur reynir fyrir sér á úrtökumótinu fyrir LET Evrópumótaröðina. Hún reyndi fyrir sér á 1. stigi úrtökumótsins fyrir LPGA mótaröðina í Bandaríkjunum fyrr á þessu ári – en náði ekki að komast áfram inn á 2. stig úrtökumótsins.
Guðrún Brá tryggði sér keppnisrétt á LET mótaröðinni árið 2020 þar sem hún hefur keppt á undanförnum tveimur árum. Hún náði ekki að halda keppnisrétti sínum eftir tímabilið í ár -og er því mætt til að ná keppnisréttinum á ný.
Keppt er á tveimur stöðum á fyrra stigi úrtökumótsins fyrir LET Evrópumótaröðina. Dagana 11.-14. október s.l. var keppt í Asíu þar sem að 9 keppendur komust áfram inn á lokaúrtökumótið sem fram fer á La Manga dagana 17.-21. desember.