Guðrún Brá Björgvinsdóttir, atvinnukylfingur úr Keili, hóf leik þann 17. desember á lokaúrtökumótinu fyrir LET European Tour.
Mótið fer fram á La Manga á Spáni þar sem að 1. stig úrtökumótsins fór einnig fram.
Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit á lokaúrtökumótinu á Spáni.
Guðrún Brá er á einu höggi yfir pari samtals eftir þrjá fyrstu hringina sem hún hefur leikið á 73-71-73. Hún er í sæti nr. 45- 54 eftir 54 holur en 20 efstu í mótslok fá keppnisrétt á LET Evrópumótaröðinni í flokki 12. Ef keppendur eru jafnir í 20. sæti fá þeir allir keppnisrétt.
Hún hóf leik á Suður-vellinum og lék á pari vallar og á öðrum hringnum á Norður-vellinum lék hún einnig á pari eða 71 höggi. Á þriðja hringnum lék hún á +1 á Norður-vellinum eða 74 höggum. Hún leikur á Suður-vellinum á fjórða hringnum.
Alls verða leiknir fimm keppnishringir á lokaúrtökumótinu á Norður- og Suður völlum golfsvæðisins. Fyrstu fjóra dagana leika keppendur tvívegis á hvorum velli fyrir sig, en lokahringurinn verður leikinn á Suður-vellinum.
Norður-völlurinn er par 71 (35-36) og verður hann á bilinu 5100-5600 metrar að lengd.
Suður-völlurinn er par 73 (37-36) og verður hann á bilinu 5600 – 6.100 metrar að lengd.
Alls eru 146 keppendur og koma þeir frá 31 mismunandi löndum.
Alls verða leiknar 90 holur á fimm dögum. Eftir 72 holur verður niðurskurður þar sem að 60 efstu komast áfram.
20 efstu í mótslok fá keppnisrétt á LET Evrópumótaröðinni í flokki 12. Ef keppendur eru jafnir í 20. sæti fá þeir allir keppnisrétt.
Keppendur í sætum 21.-50 fá keppnisrétt í flokki 16 og þeir sem eru þar fyrir neðan fá keppnisrétt í flokki 19.
Guðrún Brá hefur verið með keppnisrétt á LET Evrópumótaröðinni frá árinu 2020. Hún gerðist atvinnukylfingur árið 2018 og var með keppnisrétt á næst sterkustu atvinnumótaröð Evrópu, LET Access, árið 2018 og 2019. Hún tryggði sér keppnisrétt á LET Evrópumótaröðinni á lokaúrtökumótinu í lok janúar árið 2020.
Á því móti endaði hún í 17. sæti á +3 samtals á fimm hringjum eða 90 holum.
Alls hafa fjórar íslenskar konur komist inn á LET Evrópumótaröðina. Ólöf María Jónsdóttir var sú fyrsta, Ólafía Þórunn Kristinsdóttir var önnur í röðinni, Valdís Þóra Jónsdóttir sú þriðja og Guðrún Brá sú fjórða árið 2020. Ef Guðrúnu Brá tekst að tryggja sér keppnisrétt á ný verður hún fyrsta konan frá Íslandi sem fetar þessa leið í annað sinn á ferlinum.
Eins og áður segir lék Guðrún Brá á 1. stigi úrtökumótsins á þessum völlum dagana 10.-13. desember s.l. Ragnhildur Kristinsdóttir, GR, lék einnig á því móti.
Guðrún Brá lék hringina fjóra á 4 höggum yfir pari samtals (72-77-73-70) og endaði hún í 20. sæti og komst þar með inn á lokaúrtökumótið. Lokahringurinn var besti hringur Guðrúnar þar sem hún lék á tveimur höggum undir pari.
Ragnhildur lék hringina fjóra á +14 samtals og endaði hún jöfn í 81. sæti. Ragnhildur lék á (71-77-72-82) og hefði hún þurft að leika á +10 samtals til þess að komast inn á lokaúrtökumótið.