Sex íslenskir kylfingar hófu leik þann 26. febrúar á Nordic Golf League mótaröðinni á Spáni. Mótaröðin er í þriðja efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í karlaflokki í Evrópu.
Keppt er á tveimur völlum á PGA Catalunya golfsvæðinu rétt við borgina Girona
Mótið er hluti af ECCO Tour Spanish Masters á Nordic Golf League mótaröðinni – en flest mótin á þessari mótaröð fara fram í Danmörku, Svíþjóð og Noregi.
Mótinu lýkur þann 28. febrúar og þann 2. mars hefst nýtt þriggja daga mót á sama golfsvæði.
Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit á mótinu sem fram fer 26.-28. febrúar 2023.
Smelltu hér fyrir keppnisdagskrá Nordic Golf League á árinu 2023.
Keppnisvellirnir eru tveir á þessu móti, Stadium Course sem er par 72 og Tour Course sem er par 71.
Haraldur Franklín Magnús, GR, er efstur þessa stundina en hann lék fyrsta hringinn á 66 höggum eða 6 höggum undir pari.
Andri Þór Björnsson, GR, Axel Bóasson, GK, Elvar Kristinsson, GR, Hákon Örn Magnússon, GR, og Arnór Tjörvi Þórsson, GR eru einnig á meðal keppenda.
Á Nordic Golf League mótaröðinni gefst tækifæri til þess að komast inn á Challenge Tour, Áskorendamótaröðina, sem er í næst efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í Evrópu. Guðmundur Ágúst Kristjánsson, Haraldur Franklín Magnús og Axel Bóasson hafa allir komist inn á þá mótaröð með góðum árangri á Nordic Golf League mótaröðinni.
Fimm efstu á stigalista Nordic Golf League í lok tímabilsins fá keppnisrétt á Challenge Tour – og einnig er hægt að tryggja sér keppnisrétt á þeirri mótaröð með því að sigra á þremur eða fleiri mótum á Nordic Golf League. Þeir keppendur sem enda í sætum 6-10 á stigalista mótaraðarinnar fá takmarkaðan keppnisrétt á Challenge Tour á næsta tímabili.