/

Deildu:

Sigurður Arnar Garðarsson og Saga Traustadóttir. Mynd/GKG
Auglýsing

Landsmótinu í golfhermum 2023 lauk sunnudaginn 2. apríl þegar úrslitin réðust í Íþróttamiðstöð GKG. Þetta er í annað sinn sem Landsmótið í golfhermum fer fram en GKG var framkvæmdaraðili mótsins í samstarfi við GSÍ.

Saga Traustadóttir, GKG, sigraði í kvennaflokki og varði titil sinn frá því í fyrra. Sigurður Arnar Garðarsson, GKG, sigraði í karlaflokki en þetta er í fyrsta sinn sem hann fagnar þessum titli.

Keppnin var jöfn og spennandi í kvennaflokki þar sem að Saga sigraði með tvegga högg mun en hún lék hringina tvo í Grafarholti á 7 höggum undir pari samtals eða 135 höggum. Atvinnukylfingarnir Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK, og Ragnhildur Kristinsdóttir, GR, komu þar á eftir á -5 og -4.

Sigurður Arnar hafði töluverða yfirburði í karlaflokki en hann lék hringina tvo á Grafarholtsvelli á 19 höggum undir pari vallar eðan 123 höggum. Hann lék fyrri hringinn á 61 höggi eða 10 höggum undir pari vallar og á 62 höggum eða 9 höggum undir pari á síðari hringnum. Fimm kylfingar úr GKG röðuðu sér í efstu sætin í úrslitunum. Gunnlaugur Árni Sveinsson, GKG, varð í öðru sæti á -13 samtals en hann sigraði á þessu móti í fyrra þegar það fór fram í fyrsta sinn. Aron Snær Júlíusson, GKG, varð þriðji á -6 samtals og Sveinn Ögmundsson varð fjórði – en hannn er einnig úr GKG og er faðir Gunnlaugs Árna

Lokastaðan í karlaflokki:

<strong>Aron Snær Júlíusson Sigurður Arnar Garðarsson og Gunnlaugur Árni Sveinsson <strong>

Lokastaðan í kvennaflokki:

<strong>Ragnhildur Kristinsdóttir Saga Traustadóttir og Guðrún Brá Björgvinsdóttir <strong>

Landsmótið hófst um miðjan janúar og fóru tvær undankeppnir fram. Keppendur tóku ekki með sér árangur úr undankeppninni inn í úrslitin. Alls léku 8 keppendur í hvorum flokki til úrslita.

Leiknar voru 36 holur í úrslitunum eða tveir 18 holu hringir. Leikið var á Grafarholtsvelli en í fyrra, þegar mótið fór fram í fyrsta sinn, var leikið á Leirdalsvelli.

Veitt voru verðlaun fyrir efstu þrjú sætin í hvorum flokki auk þess sem sigurvegarar fengu farandbikar.

  1. sæti: 100.000 kr.
  2. sæti: 50.000 kr.
  3. sæti: 30.000 kr.

Vallarstillingar úrslitakeppninnar var þannig að nokkur vindur var og brautir mjúkar, þannig að aðstæður voru öllu erfiðari en í undankeppnunum. Líkt og áður þá púttuðu leikmenn þegar boltinn var meira en 2.4 metra frá holu.

<strong>Sigurður Arnar Garðarsson og Saga Traustadóttir <strong>
<strong>Sigurður Arnar Garðarsson <strong>
<strong>Saga Traustdóttir <strong>

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ