Íslandsmót eldri kylfinga 2023 fer fram á Kirkjubólsvelli hjá Golfklúbbi Sandgerðis dagana 13.-15. júlí 2023.
Skráningarfrestur hefur verið framlengdur á ný – en lokað verður fyrir skráningu föstudaginn 7. júlí 2023 kl. 11:59.
Verði hámarksfjölda keppenda náð sem eru 150 kylfingar munu þeir sem skráðu sig fyrir upphaflegan skráningarfrest í júní hafa forgang þegar kemur að þátttökurétt í mótið.
Rástímar verða birtir á mánudaginn 10. júní kl. 18:00.
Smelltu hér fyrir upplýsingar um mótið:
Þátttökugjöld skulu greidd við skráningu. Þátttökugjald fæst einungis endurgreitt séu forföll boðuð eigi síðar en kl. 18:00, þremur dögum fyrir fyrsta keppnisdag. Þátttökugjald í mótið er 21.000 kr. og innifalið er miði á lokahóf á hótel Keflavík.
Leika skal 54 holu höggleik án forgjafar á þremur dögum. Keppt skal samkvæmt gildandi reglugerð um Íslandsmót í golfi í flokkum eldri kylfinga og móta- og keppendareglum GSÍ.
Hægt er að kynna sér almennar reglur, reglugerðir og staðarreglur fyrir öll Íslandsmót GSÍ á vefsíðunni golf.is/reglugerdir
Verði fullt í mótið munu keppendur sem komust ekki inn í mótið fá endurgreitt.
Einn æfingahringur er innifalinn í mótsgjaldi. Vinsamlegast hafið samband við golfklúbbinn til að bóka rástíma.
Keppt er í eftirtöldum flokkum:
- Karlar 50 ára og eldri – Há.forgj. 18,0 – Gulir teigar
- Konur 50 ára og eldri – Há.forgj. 26,0 – Bláir teigar
- Karlar 65 ára og eldri – Há.forgj. 22,0 – Bláir teigar
- Konur 65 ára og eldri – Há.forgj. 29,0 – Rauðir teigar
Aldur miðast við almanaksár og hámarksforgjöf miðast við forgjöf þátttakanda kl. 08:00 morguninn eftir að skráningarfresti lýkur.
Hámarksfjöldi keppenda er 150 og skulu þeir leikmenn sem fjærst eru forgjafarmörkum í sínum flokki kl. 8:00 morguninn eftir að skráningarfresti lýkur öðlast þátttökurétt. Standi val á milli keppenda með forgjöf jafnlangt frá forgjafarmörkum skal hlutkesti ráða. Þó skulu að lágmarki 18 kylfingar fá þátttökurétt í hverjum flokki. Mótsstjórn er heimilt að fjölga keppendum í einstökum flokkum til að fylla í ráshópa, jafnvel þótt heildarfjöldi keppenda fari við það yfir 150.
Þátttakendalisti verður birtur fyrir kl. 20:00 30. júní.
Forfallist kylfingur eftir að rástímar 1. umferðar hafa verið gefnir út skal sá kylfingur á biðlista sem er með lægstu forgjöf í viðkomandi flokki fá þátttökurétt í ráshópi þess sem forfallaðist.
Rástímar og ráshópar
Ræst verður út af 1. teig með 10 mínútna millibili. Á fyrsta keppnisdegi er keppendum raðað út eftir forgjöf en alla aðra daga verður raðað út eftir skori.
Ekki verða leyfðar breytingar á útgefnum rástímum eftir birtingu þeirra.
1. hringur, fimmtudagur: Rástímar frá klukkan 07:30 – 15:30
Rásröð: Konur 65+, Konur 50+, Karlar 50+, Karlar 65+
2. hringur, föstudagur: Rástímar frá klukkan 07:30 – 15:30
Rásröð: Karlar 50+, Karlar 65+, Konur 65+, Konur 50+
3. hringur, laugardagur: Rástímar frá klukkan 07:00 – 15:00
Rásröð: Karlar 65+, Konur 65+, Konur 50+, Karlar 50+
Veitt verða verðlaun fyrir 1. – 3. sæti í öllum flokkum án forgjafar.
1. sæti: 40.000,- kr. Gjafakort Icelandair
2. sæti: 30.000,- kr. Gjafakort Icelandair
3. sæti: 15.000,- kr. Gjafakort Icelandair
Lokahóf fer fram á laugardagskvöldi á Hótel Keflavík og verða verðlaun afhent þar.
- Aðalréttur: Grilluð nautalund með stökkum kartöflum.
- Eftirréttur: Frönsk súkkulaðikaka með berjum og vanillu ís.
Golfbílar
Í flokkum 65 ára og eldri er notkun golfbíla heimiluð án vottorðs.
Í öðrum flokkum skal mótsstjórn aðeins veita þeim keppendum, sem framvísa vottorði frá tilnefndum trúnaðarlækni GSÍ, heimild til að nota golfbíl meðan á keppni stendur. Vottorðið skal staðfesta að keppandinn búi við langvarandi líkamlega fötlun og þurfi á golfbíl að halda við keppni, að því tilskildu að slíkt veiti keppandanum ekki ótilhlýðilegt forskot, sbr. undantekningu 1 við golfreglu 14-3. Trúnaðarlæknar GSÍ er Sveinbjörn Brandsson, sveinbjorn@orkuhusid.is og Valur Guðmundsson, valurgudm@gmail.com. Umsókn um heimild til notkunar golfbíls skal senda mótanefnd GSÍ að minnsta kosti einni viku áður en mótið hefst. Umsóknin skal send til motanefnd@golf.is og henni skal fylgja afrit vottorðsins.
Mótsstjórn:
Óskar Marinó Jónsson, Lárus Óskarsson, Arnar Geirsson, Jón Kr Baldursson og Helgi Már Halldórsson
Netfang mótsstjórnar: arnar@golf.is
Dómari: Jón Kr Baldursson og Helgi Már Halldórsson
Birt með fyrirvara um breytingar.