Nettó mótið á Unglingamótaröð GSÍ fer fram á Leirdalsvelli hjá Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar dagana 1.-3. ágúst 2023.
Skráningu í mótið lýkur föstudaginn 28. júlí kl. 23:59.
Smelltu hér til að skrá þig.
Keppnisskilmálar – Unglingamótaröðin (2)
Í flokkum 17-21 árs eru leiknar 54 holur en 36 holur í öðrum flokkum. Keppt skal samkvæmt gildandi reglugerð um stigamót unglinga og móta- og keppendareglum GSÍ.
Áætlaðir rástímar
Þriðjudagur 08:00 – 16:00
Miðvikudagur 08:00 – 16:00
Fimmtudagur 08:00-11:00 – Athugið: Einungis flokkar 17-21 árs.
Rásröðun
Þriðjudag: 17-21 árs, 14 ára og yngri, 15-16 ára.
Miðvikudag: 14 ára og yngri, 17-21 árs, 15-16 ára.
Fimmtudag: 17-21 árs.
Rástímar og ráshópar
Rástímar verða birtir á golf.is á miðvikudeginum fyrir mót. Ræst verður út af 1. teig. Á fyrsta keppnisdegi er keppendum raðað af handahófi á rástíma en síðan verður raðað út eftir skori.
Þátttökuréttur
Hámarksforgjöf í flokkum 17-21 árs kk er 15
Hámarksforgjöf í flokkum 17-21 árs kvk er 25
Hámarksforgjöf í flokkum 15-16 ára kk er 30
Hámarksforgjöf í flokkum 15-16 ára kvk er 36
Hámarksforgjöf í flokki 14 ára og yngri kk er 30
Hámarksforgjöf í flokki 14 ára og yngri kvk er 36
Ef fjöldi skráðra fer yfir hámark í hverjum flokki miðast forgjöf kylfinga kl: 8:00 morguninn eftir að skráningarfresti lýkur hverjir fá þátttökurétt.
Ef ekki næst hámarksfjöldi í einhverjum flokki verður mótstjórn heimilt að fjölga í öðrum.
Mótsstjórn heimilt að sameina flokka ef þátttakendur í flokki eru færri en 4.
17 – 21 árs
Mest 48 keppendur
Piltar
Svartir teigar 59
6.000,- kr
Stúlkur
Gráir teigar 52
6.000,- kr
15 – 16 ára
Mest 42 keppendur
Drengir
Grænir teigar 54
5.000,- kr
Stúlkur
Gráir teigar 52
5.000,- kr
14 ára og yngri
Mest 42 keppendur
Strákar
Gráir teigar 52
5.000,- kr
Stelpur
Appelsínugulir teigar 47
5.000,- kr
Alls 132 keppendur
Skráning
Þátttakendur skulu skrá sig í mótið á www.golf.is fyrir kl. 23:59 föstudaginn 29. júlí. Engar undantekningar á skráningu í mótið verða leyfðar eftir að skráningu lýkur, þó svo laus sæti séu í mótið. Allar breytingar á skráningu í mótið ber að senda í tölvupósti á ulfar@gkg.is. Athugið að kylfingur verður ekki afskráður úr mótinu eftir að rástímar hafa verið birtir.
Æfingahringur
Einn æfingahringur er innifalinn í mótsgjaldi. Keppnisvöllurinn verður opinn til æfinga fyrir skráða keppendur í síðasta lagi einum degi fyrir mót. Vinsamlegast hafið samband við klúbbinn til að bóka rástíma. En athugið að greiða verður mótsgjaldið áður en æfingahringur er leikinn. Athugið almennar reglur um æfingahring.
Kylfuberar
Kylfuberar eru leyfðir í flokki 14 ára og yngri en bannaðir í öðrum flokkum.
Verðlaun
Veitt verða verðlaun fyrir 1. – 3. sæti í öllum flokkum. Ef keppendur eru jafnir í fyrsta sæti verður leikinn bráðabani en að öðru gilda móta- og keppendareglur GSÍ. Ef keppendur eru jafnir í öðrum sætum skiptast stig og verðlaun jafnt milli þeirra keppenda.
Þeir kylfingar sem leika 54 holur (17 til 21 árs) keppa um Nettóbikarinn sem veittur er fyrir lægsta skor pilta og stúlkna.
Verðlaunaafhending
Verðlaunaafhending og lokahóf verður haldið að loknum leik hvers aldursflokks fyrir sig á lokadegi mótsins.
Mótsstjórn
Úlfar Jónsson, Jón K. Baldursson, Ásta Kristín Valgarðsdóttir, Agnar Már Jónsson