Aðalfundur PGA á Íslandi fer fram laugardaginn 13. mars í íþróttamiðstöð GKG. Dagskráin hefst kl. 14:00 en aðalfundurinn byrjar kl. 15:30.
Dagskráin verður eftirfarandi:
14:00 – 15:15 Fyrirlestur og umræður Ábyrgð þjálfara gagnvart iðkenda (Dr. Ingi Þór Einarsson).
15:15 – 15:30 Kaffihlé
15:30 – 17:00 Aðalfundur og önnur mál
Að loknum aðalfundi tekur við 18 holu golfmót, púttkeppni og kvöldverður.
Skráningarfrestur er til 12:00 á fimmtudag – nánari upplýsingar gefa Ólafur Björn Loftsson framkvæmdastjóri PGA á Íslandi og Birgir Leifur Hafþórsson, formaður PGA á Íslandi.
Lögbundin dagskrá aðalfundarins:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
2. Skýrsla stjórnar um störf og framkvæmdir á árinu
3. Umræður um skýrslu stjórnar
4. Gjaldkeri leggur fram reikninga félagsins
5. Umræður og atkvæðagreiðsla um reikninga félagsins
6. Lagabreytingar lagðar fram, umræður og atkvæðagreiðsla
7. Stjórnarkosning*
8. Kosning skoðunarmanna
9. Kosning í þriggja manna matsnefnd (kjörgengi hafa þeir sem uppfylla skilyrði 3. gr. a eða b liðar)
10. Lögð fram fjárhagsáætlun fyrir komandi starfsár ásamt tillögu stjórnar um félagsgjöld komandi starfsárs.
11. Önnur mál