Áhugaverðir fyrirlestrar um fjölbreytt málefni verða á dagskrá á ráðstefnu SÍGÍ sem fram fer í golfskála Keilis dagana 15.-16. febrúar n.k.
Á ráðstefnunni verður farið yfir mörg svið sem vallarstjórar þurfa að huga að í dag og fáum við til okkar áhugaverða fyrirlesara sem eru leiðiandi í sínu starfi í heiminum.
Meðal fyrirlesara verða.
James Bledge, Vallarstjóri Royal Cinque Ports Golf Club.
Nánari upplýsingar hér og hér.
William Boogaarts sem starfar hjá fyrirtæki í Hollandi og er leiðandi í notkun vélmenna við hirðu á grasvöllum og opnum svæðum í bæjarfélögum.
Ágúst Jensson, vallarstjóri St. Leon golfvallarins hjá Golf Club St. Leon-Rot Golfklúbbnum í Þýskalandi
Á föstudeginum munum við velta upp spurningum um gervigrasvellina sem eru orðnir vinsælir á Íslandi. Þar verður reynt að koma öllum sjónarmiðum á framfæri sem viðkoma gervigrasvöllum eins og t.d. notkunargildi, umhverfis og hagkvæmnissjónarmiðum. Dagurinn endar svo með pallborðsumræðum þar sem málið verður krufið til mergjar.
Ráðstefnunni lýkur á laugardeginum með kvöldverði í golfskála Keilis þar sem vallarstjóri ársins verður valinn.