Andri Þór Björnsson (GR) og Axel Bóasson (GK) tryggðu sér keppnisrétt á Nordic League atvinnumótaröðinn með góðum árangri á lokaúrtökumótinu sem fram fór í Danmörku um s.l. helgi.
Haraldur Franklín Magnús (GR) náði að komast í gegnum niðurskurðinn á mótinu en hann fær takmarkaðann keppnisrétt á mótaröðinni sem er í þriðja styrkleikaflokki atvinnumótaraða í Evrópu.
Björn Óskar Guðjónsson (GM) náði ekki að komast í gegnum niðurskurðinn á lokaúrtökumótinu.