Andri Þór Björnsson.
Auglýsing

Andri Þór Björnsson (GR) er úr leik á Opna breska áhugamannamótinu eftir 2&1 tap gegn Frakkanum Daydou Alexandre í 16-manna úrslitum á Carnoustie vellinum í Skotlandi. Alls komust þrír íslenskir kylfingar í 32 manna úrslit mótsins en Gísli Sveinbergsson (GK) og Guðmundur Ágúst Kristjánsson  (GR) féllu úr leik í morgun. Andri Þór var sá eini komst áfram með öruggum sigri gegn Michel Cea frá Ítalíu 4/3. Gísli tapaði gegn Skotanum Grant Forrest 3/1 og Guðmundur Ágúst tapaði gegn Mateusz Gradecki frá Póllandi 1/0.

Fyrir ári síðan komst Haraldur Franklín í 8 manna úrslit á þessu móti – sem er besti árangur hjá íslenskum kylfingi á þessu sögufræga móti.

Það er að miklu að keppa á þessu móti þar sem að sigurvegarinn fær keppnisrétt á sjálfu Opna breska meistaramótinu sem fram fer á St. Andrews í Skotlandi í júlí. Að auki fær sigurvegarinn keppnisrétt á Opna bandaríska meistaramótinu sem fram fer á Oakmont Country vellinum á næsta ári, og sjálfu Mastersmótinu á Augusta á næsta ári.

Árangur íslensku keppendanda er ótrúlega góður þar sem að tæplega 300 kylfingar tóku þátt og aðeins 64 efstu komust áfram í holukeppnina sem tók við eftir 36 holu höggleik.

Opna breska áhugamannamótið fer fram að þessu sinni í Skotlandi en mótið fer fram á tveimur völlum, Carnoustie og Panmure Angus. Þetta er í 120. sinn sem þetta sögufræga mót fer fram. Fyrstu tveir keppnisdagarnir eru höggleikur þar sem keppendur spila um að komast í sjálfa holukeppnina.

Alls tóku sjö íslenskir kylfingar þátt en alls tóku 288 kylfingar þátt frá 30 mismunandi þjóðlöndum. Tekið er mið af stöðu kylfinga á heimslista áhugamanna á þessu móti og aðeins þeir stigahæstu á þeim lista komast inn.

Andri Þór Björnsson úr GR, Gísli Sveinbergsson, GK og Guðmundur Ágúst Kristjánsson úr GR náðu allir að komast í hóp 64 efstu.

Guðmundur Ágúst lék best allra af íslensku keppendunum en hann endaði í þriðja sæti á – 5 (71-66), Gísli og Andri voru jafnir á +1 samtals í 49. sæti.

Aron Júlíusson, GKG, (72-72) +2

Haraldur Franklín Magnús, GR (76-73) +6

Rúnar Arnórsson, GK, GK (77-72) +7

Ragnar Már Garðarsson, GKG (85-74) + 17

 

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ