Arnór Snær Guðmundsson og Tumi Hrafn Kúld.
Auglýsing

Arnór Snær Guðmundsson úr Golfklúbbnum Hamri á Dalvík endaði í fimmta sæti á sterku áhugamannamóti unglingar sem fram fór í Portúgal. Tumi Hrafn Kúld úr Golfklúbbi Akureyrar tók einnig þátt en hann endaði í 33. sæti.

Lokastaðan:

Arnór lék hringina þrjá á einu höggi yfir pari samtals (76-69-72). Tumi lék á +11 samtals (75-80-72).

Mótið, sem ber nafnið Portuguese Intercollegiate Open, fór fram á Christie O’Connor vellinum við Algarve í Portúgal.

Englendingurinn Harry Konig stóð uppi sem sigurvegari á mótinu en hann lék á sex höggum undir pari vallar samtals, (74-64-72).

Screenshot (3)Screenshot (4)

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ