Site icon Golfsamband Íslands

Aron Emil fékk Björgvinsskálina fyrir besta skor áhugakylfings á Íslandsmótinu í golfi

Aron Emil Gunnarsson, GOS, með Björgvinsskálina. Mynd/seth@golf.is

Aron Emil Gunnarsson, GOS, var á lægst skori áhugakylfinga á Íslandsmótinu 2024 og fékk Björgvinsskálina í mótslok á Íslandsmótinu á Hólmsvelli í Leiru.

Þetta er í fjórða sinn sem þessi viðurkenning er veitt.

2024: Aron Emil Gunnarsson, GOS
2023: Logi Sigurðsson, GS
2022: Kristján Þór Einarsson, GM
2021: Aron Snær Júlíusson, GKG

Skálin er veitt til heiðurs Björgvini Þorsteinssyni en árið 2021 voru liðin 50 ár frá því að Björgvin varð í fyrsta sinn Íslandsmeistari í golfi. Björgvin varð síðar sexfaldur Íslandsmeistari og er næst sigursælasti kylfingur Íslandsmótsins í karlaflokki.

Verðlaunagripinn hafði Björgvin Þorsteinsson ánafnað GSÍ en um er að ræða verðlaun sem Björgvin hlaut fyrir fyrsta Íslandsmeistaratitil sinn árið 1971.

Eins og áður segir er Björgvin sexfaldur Íslandsmeistari en hann sigraði í fyrsta sinn árið 1971 og hann sigraði síðan fimm ár í röð á tímabilinu 1973-1977. Aðeins Birgir Leifur Hafþórsson hefur sigrað oftast í karlaflokki eða 7 sinnum en Birgir Leifur landaði sjöunda titlinum á Jaðarsvelli á Akureyri árið 2016. Úlfar Jónsson er einnig með sex Íslandsmeistaratitla líkt og Björgvin.

Björgvin, sem var fæddur árið 1953, lést þann 14. október 2021. Hann var á meðal keppenda á Íslandsmótinu 2021 eftir tveggja ára hlé. Hann tók þátt á 56 Íslandsmótum, þar af 55 sinnum í röð, sem er met sem verður seint slegið.

Exit mobile version