Aron Snær Júlíusson úr GKG og Gísli Sveinbergsson úr GK eru úr leik á Evrópumóti einstaklinga sem fram fer á Walton Heath vellinum á Englandi.
Aron Snær náði frábærum þriðja hring og var aðeins einu höggi frá því að komast í gegnum niðurskurðinn. Aron lék hringina þrjá á -1 samtals (74-73-68) en par vallar er 72 högg.
Gísli lék þrjá hringi á samtals +9 (79-75-71).