Þrír efstu íslensku kylfingarnir á heimslista áhugamanna í karlaflokki færast upp listann sem var uppfærður s.l. miðvikudag.
Smelltu hér fyrir heimslista áhugakylfinga.
Aron Snær Júlíusson, GKG, er í sæti nr. 203 og fer upp um 5 sæti – en þetta er besti árangur Arons Snæs frá upphafi.
Dagbjartur Sigurbrandsson, GR, fer upp um 8 sæti og er í sæti nr. 623 en hann hefur hæst farið í sæti nr. 286.
Hákon Örn Magnússon, GR, er í sæti nr. 762 og fer upp um 13 sæti en hann hefur hæst farið í sæti nr. 529.
Kristófer Karl Karlsson, GM, fer upp um 19 sæti og Böðvar Bragi Pálsson, GR, fer upp um 24 sæti.