Við óskum Atla Þór Þorvaldssyni til hamingju þar sem hann vann stóra vinninginn í Golfleik Varðar. Frábær þátttaka var í golfleiknum í sumar og voru yfir 12.000 skráningar í leiknum.
Fjölmargir náðu að klára nýja aukaborðið „Regluvörðurinn“ en þar reyndi svo sannarlega á þekkinguna á golfreglunum.
Atli vinnur golfferð fyrir tvo til Spánar á La Sella golfsvæðið með Heimsferðum.
Við óskum Atla Þór innilega til hamingju með vinninginn og vonum að hann muni njóta vel.
Vörður þakkar fyrir golfsumarið og öllum þeim sem tóku þátt í leiknum.