/

Deildu:

Axel Bóasson.
Auglýsing

Axel Bóasson tekur þátt á Euram Bank Open mótinu sem fram fer á GC Adamstal vellinum í Ramsau í Austurríki. Mótið hefst fimmtudaginn 18. júlí og eru leiknir fjórir 18 holu hringir á fjórum dögum. Niðurskurður er eftir 2. keppnisdag.

Mótið er hluti af Challenge Tour mótaröðinni, sem er næst sterkasta atvinnumótaröð í karlaflokki í Evrópu.

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit:

Axel er að leika á sínu áttunda móti á Challenge Tour á þessu tímabili, smelltu hér til að sjá úrslit og stöðu á stigalista.

Í lok tímabilsins komast 45 efstu á lokamótið þar sem að keppt er um 20 sæti á DP World Tour, sem er í efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í Evrópu í karlaflokki.

Alls eru 29 mót á Challenge Tour á þessu tímabili og er mótið í Austurríki það fimmtánda á þessu tímabili.

Guðmundur Ágúst Kristjánsson og Haraldur Franklín Magnús eru ekki á meðal keppenda á þessu móti í Austurríki.

Haraldur Franklín er á keppendalistanum á Black Desert NI Open mótinu sem fram fer í næstu viku á Norður-Írlandi, dagana 25.-28. júlí en þar eru Axel og Guðmundur Ágúst á biðlista. Axel er í 7. sæti á biðlistanum og Guðmundur Ágúst í 15. sæti.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ