Axel Bóasson endaði í 13. sæti á Österlen mótinu á Ecco Nordic atvinnumótinu sem lauk i dag í Svíþjóð. Keilismaðurinn lék lokahringinn á 73 höggum eða +2 og var hann samtals á +1 á 54 holum, (68-73-73). Ecco Nordic mótaröðin er í flokki atvinnumannadeilda sem eru í þriðja styrkleikaflokki í Evrópu.
Pétur Freyr Péturson úr GR lék einnig á þessu móti en hann komst ekki í gegnum niðurskurðinn.
Sænski kylfingurinn Ola Johansson sigraði á þessu móti á -5 samtals.