Axel Bóasson og Haraldur Franklín Magnús komust ekki í gegnum niðurskurðinn á Áskorendamótaröðinni í golfi á Englandi. Mótið heitir Bridgestone Challenge og er leikið á Luton Hoo Hotel vellinum.
Mótið á Englandi er 16. mótið hjá Íslandsmeistaranum 2018 úr Keili. Hann hefur komist í gegnum niðurskurðinn á einu móti. Axel í 253 sæti á stigalista mótaraðarinnar.
Haraldur Franklín er að leika á sínu fyrsta móti á Áskorendamótaröðinni á tímabilinu.
Axel var aðeins einu höggi frá því að komast í gegnum niðurskurðinn en hann lék á -2 samtals (68-72).
Haraldur Franklín lék á pari vallar og var hann þremur höggum frá því að komast áfram (73-69).