Auglýsing

Íslandsmót yngri kylfinga hófst á föstudaginn á Leirdalsvelli hjá GKG. Þar er keppt í þremur aldursflokkum hjá báðum kynjum. Skor keppenda er uppfært á reglulega á meðan keppendur eru að leika og er það frábært framtak hjá GKG sem er framkvæmdaaðili mótsins. Fjöldi sjálfboðaliða starfar við að slá inn skor keppenda ásamt forvörslu á nokkrum brautum.

Á lokahringnum verður bein útsending á Sport TV frá 17. braut þar sem fylgst verður með gangi mála hjá öllum ráshópum dagsins. Hægt verður að fylgjast með útsendingunni á Sport TV og auk þess verður hægt að fylgjast með í íþróttamiðstöð GKG.

Skor keppenda er hægt að sjá hér: 

Sameiginlegt lokahóf Íslandsbankamótaraðarinnar og Áskorendamótaraðarinnar verður í íþróttamiðstöð Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar kl. 20.00 á sunnudag undir stjórn Auðuns Blöndal og mun söngvarinn

Friðrik Dór koma og skemmta.

Veitingar í boði og dregið um aukaverðlaun úr skorkortum.

Merkjum endilega myndirnar sem teknar eru í mótum sumarsins
með #isbgolf

Staðan fyrir lokahringinn er þessi:

Screen Shot 2016-07-17 at 7.34.40 AM Screen Shot 2016-07-17 at 7.34.31 AM Screen Shot 2016-07-17 at 7.34.17 AM Screen Shot 2016-07-17 at 7.34.04 AM Screen Shot 2016-07-17 at 7.33.50 AM Screen Shot 2016-07-17 at 7.33.35 AM

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ