Berglind Björnsdóttur úr Golfklúbbi Reykjavíkur sigraði í kvennaflokki á Egils Gull mótinu sem fram fór um helgina en þetta er annað mótið á Eimskipsmótaröðinni þetta sumarið.
Berglind leiddi allt frá upphafi en hún hafði hún sex högga forystu á Guðrúnu Brá Björgvinsdóttur fyrir lokahringinn. Guðrún Brá sótti fast að fyrsta sætinu og þegar best lét þá var hún einu höggi á eftir en svo fór sem fór. Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Golfklúbbnum Keili varð því að sætta sig við annað sætið líkt og um síðustu helgi á Nettó mótinu. Sú óvenjulega staða kom upp í kvennaflokki að fimm konur urðu jafnar í þriðja sæti og þar sem ekki er leikinn bráðabana um það sætið þá stendur sú niðurstaða.
1. Berglind Björnsdóttir GR 69/73/77 = 219 +9
2. Guðrún Brá Björgvinsdóttir GK 74/74/72 = 220 +10
3-7. Þórdís Geirsdóttir GK 83/72/71 = 226 +16
3-7. Signý Arnórsdóttir GK 80/75/71 = 226 +16
3-7. Karen Guðnadóttir GS 79/75/72 = 226 +16
3-7. Ragnhildur Kristinsdóttir GR 78776/72 = 226 +16
3-7. Anna Sólveig Snorradóttir GK 75/77/74 = 226 +16
Guðrún Brá Björgvinsdóttir
Sigurvegarinn í kvennaflokki, Berglind Björnsdóttir