Mikill áhugi er hjá afrekskylfingum landsins á EgilsGull-mótinu sem fram fer um næstu helgi á Þorlákshafnarvelli.
Biðlisti er fyrir EgilsGull-mótið og í morgun var dregið um hvaða þrír kylfingar komust inn á mótið.
Fimm kylfingar voru í pottinum. Gregor Brodie afreksstjóri GSÍ sá um að draga úr pottinum.
Mótið er fyrsta mót tímabilsins á „Mótaröð þeirra bestu“ en alls verða fimm mót á dagskrá í sumar.
Eftirtaldir þrír kylfingar komust inn á EgilsGull-mótið.
Pétur Sigurdór Pálsson, GOS.
Stefán Þór Hallgrímsson, GM
Ísak Jasonarson, GÖ
Á biðlista:
Kjartan Sigurjón Kjartansson
Arnór Tjörvi Þórsson