Birgir Leifur Hafþórsson.
Auglýsing

Birgir Leifur Hafþórsson, úr GKG, er úr leik á lokaúrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina í golfi. Hann lék fjórða hringinn á -2 eða 68 höggum en það dugði ekki til og endaði hann á +3 samtals (74-72-73-68). Þeir kylfingar sem náðu að vera í einu af 70 efstu sætunum leika tvo hringi til viðbótar og að þeim loknum fá 25 efstu keppnisrétt á Evrópumótaröðinni. Birgir endaði í 106. sæti af alls 156 kylfingum sem komust inn á lokaúrtökumótið á PGA Catalunya á Spáni.

 Lokastaðan


Screenshot (2).png

[quote_box_right]Saga Birgis á úrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina er áhugaverð. Hann er að leika í 17. sinn frá árinu 1997 á úrtökumótinu. Þetta er í 12. sinn sem hann tekur þátt á lokaúrtökumótið (3. stigið) og alls 14. sinnum hefur hann leikið á 2. stiginu og aðeins þrívegis hefur honum mistekist að komast ekki í gegnum 2. stig úrtökumótsins.[/quote_box_right]

Keppt er á tveimur völlum á þessu golfsvæði, Stadium og Tour völlunum, sem eru hannaðir af Neil Coles og Angel Gallardo. Lokamótið á úrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina hefur farið fram á þessum völlum frá árinu 2008 og samningur í gildi fram til ársins 2017 um að mótið fari fram á þessum stað.

Það er að miklu að keppa fyrir kylfingana á lokaúrtökumótinu. Margir þekktir kylfingar hafa farið í gegnum þetta erfiða mót. Þar má nefna Íslandsvininn Anirban Lahiri frá Indlandi sem endaði í 17. sæti á lokaúrtökumótinu í fyrra. Hann náði að sigra á tveimur mótum á Evrópumótaröðinni á þessu tímabili. Englendingurinn ungi Matt Fitzpatrick er einnig með svipaða sögu en hann er í dag á meðal 40 efstu á stigalistanum á Evrópumótaröðinni og hefur fagnað einum sigri.

[quote_box_left]Á lokaúrtökumótinu eru margir þekktir kylfingar sem hafa m.a. sigrað á mótum á Evrópumótaröðinni. Þeir þurfa nú að sanna tilverurétt sinn á meðal þeirra bestu í Evrópu á ný og má þar nefna Edoardo Molinari frá Ítalíu sem endaði í 40. sæti á peningalistanum í fyrra á Evrópumótaröðinni.Nick Dougherty frá Englandi er með á þessu móti.[/quote_box_left]

Paul Dunne frá Írlandi, sem vakti athygli á Opna breska meistaramótinu í sumar, er á meðal keppenda en hann deildi efsta sætinu á St. Andrews fyrir lokahringinn. Dunne er fyrsti áhugamaðurinn frá árinu 1927 sem nær því að vera í efsta sæti á þessu stórmóti fyrir lokahringinn en hann endaði í 30. sæti

Evrópmótaröðin er næst sterkasta atvinnumannamótaröð heims á eftir PGA mótaröðinni í Bandaríkjunum. Birgir Leifur, sem er 39 ára gamall, er eini íslenski karl kylfingurinn sem hefur náð að tryggja sér keppnisrétt á Evrópumótaröðinni.

Það gerði hann árið 2006 og lék m.a. á 18 mótum á Evrópumótaröðinni tímabilið 2006–2007. Hann tryggði sér keppnisrétt á ný á Evrópumótaröðinni 2007 með því að komast í gegnum lokaúrtökumótið á Spáni. Alls hefur hann leikið á 58 mótum á Evrópumótaröðinni á ferlinum.

[quote_box_right]Aðeins tveir kylfingar af alls 924 sem hófu leik á fyrsta stigi úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina í fyrra komust í gegnum lokaúrtökumótið og tryggðu sér keppnisrétt á sjálfri Evrópumótaröðinni. Það voru þeir Tom Murray and Daniel Woltman. Alls komust 27 kylfingar af lokaúrtökumótinu inn á Evrópumótaröðina sem er rétt um 3% af þeim sem reyndu fyrir sér í þessari erfiðu keppni.[/quote_box_right]

Fjölmargir kylfingar sem hafa farið í gegnum úrtökumót Evrópumótaraðarinnar hafa náð að sigra á risamótum á ferli sínum. Þar má nefna Sandy Lyle, Ian Woosnam, Jose Maria Olazabal, Vijay Singh, Paul Lawrie, Vijay Singh, Retief Goosen, Michael Campbell, Geoff Ogilvy, Angel Cabrera, Padraig Harrington, Louis Oosthuizen, Charl Schwartzel,  Darren Clarke og Justin Rose.

Áhugaverðar staðreyndir um lokaúrtökumótið 2015:

156 keppendur frá 26 löndum.

43 keppendur sem komust í gegnum 1. og 2. stig úrtökumótsins, Birgir Leifur Hafþórsson er einn þeirra.

32 keppendur erum fyrrum sigurvegarar á Evrópumótaröðinni með samtals 58 sigra. Þar fer Jarmo Sandelin frá Svíþjóð fremstur í flokki með fimm sigra.

5 keppendur á lokaúrtökumótinu hafa sigrað á lokaúrtökumótinu áður. Richard McEvoy (2003 Emporda), Martin Wiegele (2007 San Roque Club), Oskar Henningsson (2008), David Dixon (2011) og Carlos Del Moral (2013).

4 keppendur hafa verið efstir á stigalista Áskorendamótaraðarinnar, Mark Foster (2001), Johan Edfors (2003), Edoardo Molinari (2009) and Espen Kofstad (2012).

[pull_quote_left]3 kylfingar hafa leikið með Ryderliði Evrópu á ferlinum, en eru þessa stundina að berjast fyrir tilverurétti sínum á meðal bestu kylfinga Evrópu.  Jarmo Sandelin (1999), Soren Hansen (2008) og Edoardo Molinari (2010).[/pull_quote_left]

18 keppendur eru eldri en 40 ára.

4 keppendur eru yngri en 20 ára.

953 keppendur tóku þátt á úrtökumótunum í ár, á öllum þremur stigum keppninnar.

778 keppendur tóku þátt á 1. stiginu sem er nýtt met.

93 keppendur komu beint inn á 2. stig úrtökumótsins og þar á meðal Birgir Leifur Hafþórsson.

82 keppendur komust beint inn á lokaúrtökumótið, ýmist af Áskorendamótaröðinni eða sjálfri Evrópumótaröðinni.

Peter Heblom frá Svíþjóð er leikreyndasti leikmaðurinn á lokaúrtökumótinu. Hann hefur leikið á 465 mótum á Evrópumótaröðinni.

Birgir Leifur Hafþórsson hefur leikið á 58 mótum á Evrópumótaröðinni.

Sören Hansen er sá kylfingur sem hefur unnið sér inn hæstu upphæðina í verðlaunafé á Evrópumótaröðinni af þeim sem eru á lokaúrtökumótinu. Daninn hefur unnið sér inn 1,3 milljarða kr. á ferlinum.

Mark Foster frá Englandi hefur leikið á Evrópumótaröðinni í 14 ár í röð en hann er á meðal keppenda á lokaúrtökumótinu í ár.

Þjóðverjinn Dominic Foss er yngsti leikmaðurinn á lokaúrtökumótinu en hann er 18 ára gamall.

Jarmo Sandelin frá Svíþjóð er elsti keppandinn á lokaúrtökumótinu en hann er 48 ára gamall.

Cesar Costillo frá Argentínu er elsti nýliðinn á lokaúrtökumótinu en hann er 46 ára gamall.

Þetta er í 8. sinn í röð sem lokaúrtökumótið fer fram á PGA Catalunya Resort á Spáni.

Lokaúrtökumótið er það 40. frá upphafi en það fór fyrst fram árið 1976.

 

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ